Rúmgott einbýlishús við Heiðarveg 15 á Reyðarfirði hefur verið sett á sölu. Húsið var reist árið 1973 og er ásett verð 69,9 milljónir króna.
Aðalíbúð hússins er á efri hæð. Þar er komið inn í forstofu með fataskáp og þaðan á gang. Stór og björt stofa og borðstofa eru á hæðinni ásamt rúmgóðu eldhúsi með upprunalegri innréttingu. Við hlið eldhússins er þvottahús.
Fjögur svefnherbergi eru á efri hæðinni og baðherbergið er rúmgott með bæði sturtu og baðkari. Nýlega hefur verið skipt um gler í gluggum á suðurhlið hæðarinnar. Svalir eru einnig á suðurhlið hússins.
Á neðri hæð hússins er rúmgóð íbúð með sérinngangi. Ekki er opið á milli hæða eins og staðan er nú, en samkvæmt sölulýsingu er mögulegt að breyta því. Geymsla er nú þar sem stigaopið milli hæðanna var áður.
Innbyggður bílskúr er einnig á neðri hæðinni og þar er gryfja, sem getur meðal annars nýst við viðhald bifreiða.
Lóðin við húsið er gróin og þar er stórt bílaplan. Búðará rennur meðfram lóðinni en mikill trjágróður er á milli hússins og árinnar.
Við ána liggur göngustígur sem hægt er að fylgja niður í miðbæ Reyðarfjarðar eða upp til fjalls. Þá er stutt frá eigninni í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki og leiksvæði.
Ásett verð eignarinnar er 69,9 milljónir króna.

