
Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal verkefna voru meint líkamsárás, umferðarslys, ágreiningur um leigubílafargjald og ölvaður maður sem þurfti aðstoð við að komast heim.
Lögreglu barst tilkynning um ökumann leigubifreiðar sem sagður var hafa kýlt annan mann. Lögreglumenn fóru á vettvang og ræddu við báða aðila. Myndefni frá vettvangi er sagt gefa góða mynd af því sem átti sér stað og er málið nú til rannsóknar.
Í öðru tilviki var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna ágreinings um fargjald þegar leigubifreið var komin á áfangastað. Málið var leyst á vettvangi og greiddi farþeginn fyrir aksturinn.
Lögregla sinnti einnig útkalli vegna manns sem var ofurölvi á bar í miðborg Reykjavíkur. Maðurinn var ekki talinn fær um að gæta eigin hagsmuna vegna ölvunar og ók lögregla honum heim. Þá var sofandi manni í anddyri fjölbýlishúss vísað á brott.
Tilkynnt var um unga drengi sem höfðu verið að sprengja víti í og við íbúðahverfi í Garðabæ undanfarna daga. Lögregla leitaði drengjanna en án árangurs.
Einnig barst tilkynning um þrjá einstaklinga sem sagðir voru hafa ráðist á vin tilkynnanda. Tilkynnandinn gat hvorki gefið greinargóða lýsingu á árásarmönnunum né upplýst nákvæmlega hvar vinurinn væri. Lögregla leitaði á þeim stað þar sem árásin átti að hafa átt sér stað en fann engan.
Þá varð lögregla vitni að árekstri þriggja bifreiða. Ökumenn og farþegar fundu fyrir verkjum og eymslum eftir höggið en bifreiðarnar voru allar ökufærar. Framburðir voru teknir á vettvangi.
Í öðru umferðarslysi var bifreið ekið á kyrrstæða bifreið vegna hálku. Ökumaður slasaðist ekki og er málið til rannsóknar.
