
Það verður ekki annað sagt en pistill Mörtu Maríu Winkel, blaðamanns Morgunblaðsins, sem birtist í gær hafi vakið mikla athygli. Þar skrifaði hún um áfengisdrykkju þingmanna en benti sérstaklega á Sigmund Erni Rúnarsson, þingmann Samfylkingarinnar, sem játaði árið 2009 að hafa fengið sér að drekka áður en hann mætti í pontu á Alþingi. Marta bendir einnig á að flestir hefðu líklega misst vinnuna fyrir slíkt.
Hins vegar er áhugavert að blaðakonan knáa hafi ekki rifjað upp talsvert nýlegra dæmi en eins og alþjóð veit mætti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þáverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, upp í pontu í fyrra eftir að hafa fengið sér áfengi fyrr um daginn.
Mögulegt er þó að Marta María hafi hreinlega gleymt því að dóttir stjórnarformanns Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins, hafi gert sama og Sigmundur. Áslaug, líkt og Sigmundur, hélt vinnu sinni ...
