
Britax Römer innkallar ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem seldir hafa verið á Íslandi, meðal annars hjá Fífu. Gallinn getur valdið því að öryggisbelti stólsins losni eða brotni við framanákeyrslu.
Framleiðandinn Britax Römer hefur ákveðið að innkalla BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Innköllunin nær bæði til stóla sem seldir voru stakir og þeirra sem seldir voru með VARIO BASE 5Z ISOFIX-festingu.
Ákvörðunin var tekin eftir að þýska neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann galla við prófanir á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu.
Við þær aðstæður getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu. Afleiðingin getur orðið sú að barnið sé ekki nægilega tryggilega fest í stólnum.
Vandamálið kom hins vegar ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á festingunni eða þegar hann var festur í bílinn með öryggisbelti.
Við nánari rannsókn hefur fyrirtækið afmarkað innköllunina við stóla með öryggissmellu úr tiltekinni framleiðslulotu.
Eigendur hvattir til að kanna stólana
Eigendur BABY-SAFE PRO-stóla sem framleiddir voru á umræddu tímabili eru hvattir til að kanna hvort stóll þeirra falli undir innköllunina.
Framleiðsludagsetningin er á vörumerkingu neðst á skel stólsins. Hægt er að kanna hvort stóll sé innkallaður á vefsíðunni baby-safe-check.com.
Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hans tafarlaust og hafa samband við söluaðila.
Britax Römer segir öryggi barna vera forgangsmál og að fyrirtækið muni veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð á meðan innköllunin stendur yfir.
