1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

4
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

5
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

6
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

7
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

8
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

9
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

10
Innlent

Ásgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um Ölgerðina

Til baka

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

„Jason, ef þess þyrfti, myndu þeir stökkva fyrir byssukúlu fyrir þig“

Jason Alexander
Jason AlexanderJason Alexander rifjar upp gestrisni Palestínumanna
Mynd: JEMAL COUNTESS / GETTY IMAGES VIA AFP

Bandaríski leikarinn Jason Alexander, sem er þekktastur fyrir hlutverk George Costanza í sjónvarpsþáttunum Seinfeld, rifjaði nýlega upp hvernig tíu palestínskir menn vernduðu hann í hernaðaraðgerð Ísraelsmanna í Ramallah á Vesturbakkanum. Hann segir reynsluna hafa sýnt sér styrk palestínskrar gestrisni og samstöðu.

Alexander sagði frá atvikinu í hlaðvarpinu Build or Break, þar sem hann ræddi við frumkvöðulinn Daniel Lubetzky. Hann heimsótti hernumda Vesturbakkann árið 2004 í tengslum við friðarverkefnið OneVoice, sem miðaði að því að hvetja Ísraela og Palestínumenn til að styðja samningaviðræður um tveggja ríkja lausn.

Í heimsókninni ræddi Alexander við palestínskan mann að nafni Mohammed og spurði hann hvort hann, sem amerískur gyðingur væri öruggur í Palestínu. Maðurinn útskýrði fyrir honum mikilvægi þess í íslam að vernda gest sem hefði verið boðið heim.

„Mesta vanvirða sem trúaður múslimi getur sýnt er að leyfa gesti, sem honum hefur verið boðið, að verða fyrir skaða,“ sagði Mohammed, samkvæmt frásögn Alexanders.

Mohammed bætti við að gestgjafar leikarans væru tilbúnir að leggja líf sitt í hættu til að vernda hann.

„Jason, ef þess þyrfti, myndu þeir stökkva fyrir byssukúlu fyrir þig,“ sagði hann.

Alexander sagðist hafa áttað sig á alvöru orðanna þegar tíu palestínskir menn söfnuðust í kringum hann eftir að skothvellir heyrðust í miðri hernaðaraðgerð Ísraelsmanna.

„Ég man að þessir tíu menn við borðið umkringdu mig. Ég hugsaði: „Guð minn góður, hann var ekki að grínast. Þeir ætla ekki að leyfa að mér verði gert mein,““ sagði leikarinn.

Ólík afstaða fyrrverandi meðleikara

Frásögn Alexanders hefur einnig vakið athygli vegna opinbers stuðnings hans við Ísrael á fyrri árum. Hann tók meðal annars þátt í fjáröflun fyrir samtökin Friends of the Israel Defense Forces (FIDF), sem styðja ísraelska hermenn. Árið 2012 var hann kynnir á fjáröflunarkvöldi samtakanna í Los Angeles, þar sem meira en 14 milljónum Bandaríkjadala var safnað til stuðnings hermönnum og velferðar- og menntaverkefnum.

Sagan hefur jafnframt beint sjónum að ólíkri afstöðu Alexanders og fyrrverandi meðleikara hans úr Seinfeld, Jerry Seinfeld.

Seinfeld hefur lýst yfir opinberum stuðningi við Ísrael í stríðinu á Gaza. Í október 2026 brást hann háðslega við mótmælendum sem gagnrýndu Ísrael á skemmtun hans í Chicago. Þar sagði hann meðal annars: „Ég er rasisti, þetta eru þjóðarmorð og ég er styð það,“ áður en hann dansaði á sviðinu. Hann sagði einnig einum mótmælanda að hann myndi senda andivirði miða hans til Ísraels.

Frásögn Alexanders snýst hins vegar um persónulega reynslu hans af Palestínumönnum og þá vernd sem hann segir þá hafa veitt sér. Í viðtali við The Forward árið 2004 lýsti hann einnig hlýlegum viðtökum Palestínumanna og sagði að bein samskipti við íbúa Ramallah hefðu breytt fyrirframgefnum hugmyndum hans um borgina.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Öryggisbeltið getur losnað við framanákeyrslu
Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Heimur

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

Kjósendur í Tennessee ýttu á einn frambjóðanda en vélin valdi annan
Heimur

Kjósendur í Tennessee ýttu á einn frambjóðanda en vélin valdi annan

BBC hrekur sögu Trumps um rússneska skriðdreka sem festust í leðju
Heimur

BBC hrekur sögu Trumps um rússneska skriðdreka sem festust í leðju

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney
Innlent

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney

Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

„Nú vil ég fá að vera í friði, endurbyggja líf mitt og verja tíma með fjölskyldunni“
Kjósendur í Tennessee ýttu á einn frambjóðanda en vélin valdi annan
Heimur

Kjósendur í Tennessee ýttu á einn frambjóðanda en vélin valdi annan

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Heimur

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Loka auglýsingu