
Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra segir enga stefnubreytingu hafa orðið í ráðuneytinu varðandi aukið svigrúm foreldra til að skipta fæðingarorlofi sín á milli. Málið kom til umræðu á Alþingi í dag þegar Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, spurði ráðherra um fyrirkomulag fæðingarorlofs.
Snorri gagnrýndi núverandi kerfi, þar sem foreldrar eiga almennt sex mánaða rétt hvort og aðeins hluti tímans er framseljanlegur. Hann sagði kerfið koma illa niður á fjölskyldum sem af ýmsum ástæðum gætu ekki nýtt orlofið samkvæmt þeirri skiptingu.
„Við höfum lengi talað fyrir því að afnema þessa skyldubundnu skiptingu af hálfu stjórnvalda. Þetta er gífurlegt réttlætismál,“ sagði Snorri.
Ragnar Þór sagði stjórnvöld áfram vilja skoða aukinn sveigjanleika og að fleiri þættir fæðingarorlofskerfisins væru einnig til skoðunar.
„Það er engin stefnubreyting í ráðuneytinu varðandi það að auka möguleika á skiptingu fæðingarorlofs,“ sagði Ragnar Þór benti jafnframt á að miklar breytingar hefðu verið gerðar á fæðingarorlofskerfinu á undanförnum árum, meðal annars með lengingu fæðingarorlofs og sorgarleyfis, greiðslum til foreldra vegna veikinda á meðgöngu og hækkun hámarksgreiðslna. Sagði hann breytingarnar hafa orðið til þess að feður tækju fæðingarorlof í mun ríkari mæli en áður og að því hefði fylgt aukinn kostnaður.
Snorri gagnrýnir kostnaðarrökin
Snorri gagnrýndi að kostnaður væri nefndur sem hindrun og sagði dapurlegt ef litið væri á aukna nýtingu fæðingarorlofs með þeim hætti.
„Það er heldur nöturleg sýn á fæðingarorlofskerfið að líta svo á að það sé hvimleiður kostnaður sem fylgir því í raun og veru að gera þessar breytingar þannig að fjölskyldur væru þá í auknum mæli að nýta alla 12 mánuðina sem er réttur þeirra,“ sagði Snorri.
Ragnar Þór ítrekaði að þær breytingar sem þegar hefðu verið gerðar væru jákvæðar og hefðu meðal annars orðið til þess að feður tækju fæðingarorlof í ríkari mæli en áður. Frekari breytingar kölluðu hins vegar á fjárheimildir.
„Það er að virka betur en lagt var upp með,“ sagði Ragnar Þór um breytingarnar og bætti við að auknum útgjöldum vegna frekari breytinga þyrftu að fylgja viðeigandi heimildir Alþingis.
