
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur skipað Birgi Rafn Þráinsson í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu netöryggis og fjarskipta í innviðaráðuneytinu frá 1. nóvember nk. Ráðherra skipaði Birgi Rafn að undangengnu mati ráðgefandi hæfnisnefndar.
Hlutverk skrifstofu netöryggis og fjarskipta verður að vinna að stefnumótun, þróun og samhæfingu á sviði fjarskipta og netöryggis. Starfsemi hennar snýr að mótun laga og reglna, þróun opinberrar stefnu, alþjóðlegu samstarfi og eftirfylgni með málaflokkum sem hafa vaxandi þýðingu fyrir öryggi, samkeppnishæfni og samfélagsþróun.
Birgir Rafn býr yfir áratuga stjórnunarreynslu á sviði upplýsingatækni, fjarskipta og netöryggis bæði hjá hinu opinbera og í einkageiranum. Birgir hefur starfað sem skrifstofustjóri í Stjórnarráðinu frá árinu 2021 og verið formaður netöryggisráðs frá 2022.
Áður hafði Birgir Rafn m.a. starfað sem sérfræðingur og ráðgjafi í upplýsingatæknimálum með áherslu á net- og upplýsingaöryggi hjá PricewaterhouseCoopers, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs fjarskiptafyrirtækisins Hibernia Networks, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur og framkvæmdastjóri hugbúnaðarsviðs OZ Communications.
Birgir Rafn er með BSc gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og MSc gráðu í tölvunarfræði frá Pennsylvania State háskólanum.
Alls barst 21 umsókn um embættið.
