
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í fjölmörg horn að líta í dag en meðal verkefna voru þjófnaðarmál, fíkniefnabrot, innbrot og fjöldi umferðarlagabrota.
Aðili var kærður fyrir þjófnað í matvöruverslun og síðar handtekinn vegna gruns um vörslu fíkniefna. Við afskipti lögreglu viðurkenndi hann jafnframt að hafa verið að selja fíkniefni.
Annar aðili var handtekinn vegna gruns um þjófnað. Lögregla lagði hald á ýmis verkfæri sem hann hafði í fórum sínum. Þá var tilkynnt um innbrot í heimahús og er það mál til rannsóknar. Einnig var annar einstaklingur kærður fyrir þjófnað í verslun.
Nokkrir ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Flestir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku en einn var vistaður í fangaklefa vegna annars máls.
Fjöldi umferðarlagabrota kom einnig til kasta lögreglu. Fimm ökumenn voru kærðir fyrir notkun farsíma við akstur og sjö eiga von á sekt vegna ólöglegra lagninga. Einn ökumaður var kærður fyrir að aka gegn rauðu ljósi og annar fyrir að aka á 108 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Þá var ökumaður kærður fyrir akstur sviptur ökuréttindum og annar vegna filma í fremri hliðarrúðum.
Tilkynnt var um árekstur þar sem ökumaður ók af vettvangi. Hann skildi þó eftir sig mikilvæga vísbendingu þar sem annað skráningarmerki bifreiðarinnar varð eftir á vettvangi.
Nokkur umferðarslys urðu einnig. Eftir árekstur tveggja bifreiða voru báðar óökuhæfar og ökumenn þeirra fluttir með sjúkrabíl. Í öðru tilviki lentu þrjár bifreiðar saman og var einn ökumaður fluttur með sjúkrabíl.
Loks barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í Mosfellsbæ. Ekkert athugavert var sjáanlegt þegar lögreglu bar að garði.
