1
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

2
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

3
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

4
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

5
Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi

6
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

7
Fólk

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda

8
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

9
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

10
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

Til baka

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

Google stefnir á að byggja gervigreindargagnaver á svæðinu

Finnland
DrullusvæðiðUm 400.000 tré hafa verið felld án leyfis
Mynd: ALESSANDRO RAMPAZZO / AFP

Tæknirisinn Google felldi um 250 þúsund tré í skógi nærri bænum Muhos í norðurhluta Finnlands til að rýma fyrir gagnaveri, án þess að ljúka tilskilnu umhverfismati. Einnig voru um 150 þúsund tré felld á öðrum byggingarstað í Otanmäki. Finnsk yfirvöld hafa fyrirskipað tímabundna stöðvun framkvæmda. The Guardian fjallar um málið.

Skógurinn í Muhos náði yfir um 330 hektara svæði. Nú er þar að mestu ber jörð, leðja og jarðvegur sem vinnuvélar hafa rótað upp. Íbúar hafa jafnframt lýst áhyggjum af því að brúnt vatn frá framkvæmdasvæðinu renni í læk sem tengist ánni Oulujoki.

Google baðst afsökunar á skógarhögginu en sagði fyrirtækið hafa farið eftir bestu túlkun sinni á lögum á þeim tíma. Finnsk yfirvöld stöðvuðu framkvæmdir í Muhos og við Otanmäki fyrr í þessum mánuði eftir að í ljós kom að nauðsynlegu umhverfismati hafði ekki verið lokið.

Deilt um ávinninginn fyrir Finnland

Gagnaverin eru hluti af 13 milljarða evra fjárfestingu Google í gervigreindarinnviðum. Finnsk stjórnvöld hafa fagnað fjárfestingunni og forsætisráðherrann Petteri Orpo sagt að það sé forgangsverkefni að laða erlenda fjárfestingu til landsins.

Málið hefur þó vakið mikla reiði og kallað fram spurningar um umhverfisvernd, orkunotkun og ávinning heimamanna. Yfir 93 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um strangari reglur um gagnaver og gjald sem renni til samfélaga sem verða fyrir umhverfisspjöllum.

Jussi Kangasharju, yfirmaður tölvunarfræðideildar Háskólans í Helsinki, segir að gagnaver skapi tiltölulega fá störf og að þjóðhagslegur ávinningur Finnlands sé takmarkaður. Fyrirtækin þjóni fyrst og fremst alþjóðlegum viðskiptavinum og lítið af fyrirtækjasköttum skili sér til Finnlands.

Íbúar nærri framkvæmdasvæðunum hafa einnig lýst áhyggjum af hávaða, áhrifum á dýralíf og vatnsgæði. Í Otanmäki segja íbúar að úlfar hafi leitað inn í þorpið eftir að dýrin hröktust úr skóginum. Náttúruverndarsinnar segja jafnframt að fuglar hafi misst búsvæði sín.

Sumir íbúar styðja þó framkvæmdina vegna þeirra starfa og skatttekna sem hún gæti skapað. Svæðið glímir við fækkun íbúa og öldrun þjóðarinnar, og sveitarfélögin vonast eftir nýjum fjárfestingum.

Google segist vinna að því að vernda vatnsgæði á svæðinu í Muhos og hyggist gróðursetja tré á 130 hekturum. Náttúruverndarsinnar telja það þó ekki duga til að bæta tjónið sem þegar hefur orðið.

Fyrirtækið segir að það hafi stöðvað undirbúningsframkvæmdir eftir tilmæli finnskra yfirvalda 6. október og muni verða við kröfum þeirra. Umhverfisráðuneyti Finnlands segir stjórnvöld fylgjast með þróun gagnaverageirans og vera reiðubúin að leggja til lagabreytingar ef þörf krefur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

Sýslumaður boðar fjóra erlenda feður vegna meðlagsmála
Innlent

Sýslumaður boðar fjóra erlenda feður vegna meðlagsmála

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu
Myndir
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

Vinur sagður í hættu eftir árás
Innlent

Vinur sagður í hættu eftir árás

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

Google stefnir á að byggja gervigreindargagnaver á svæðinu
Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Loka auglýsingu