
26 ára Grafarvogsbúi hefur verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og peningaþvætti. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur 22. október.
Málið á rætur að rekja til apríl 2022 þegar lögregla hafði afskipti af manninum. Við leit á honum, í bakpoka hans og á þáverandi heimili hans fundust rúmlega 863 grömm af kannabisblönduðu efni, 16,5 grömm af maríhúana og minna magn annarra kannabisefna.
Samkvæmt ákæru voru fíkniefnin ætluð til sölu og dreifingar. Lögregla fann einnig tvo fjaðrahnífa og tvo kasthnífa. Maðurinn bar annan fjaðrahnífinn innanklæða þegar lögregla hafði afskipti af honum.
Grafarvogsbúinn var einnig sakfelldur fyrir peningaþvætti vegna 157 þúsund króna í reiðufé sem lögregla fann í fórum hans. Peningarnir voru taldir ávinningur af fíkniefnasölu.
Maðurinn játaði brotin skýlaust og hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Dómurinn leit einnig til þess að málið hafði dregist án þess að honum væri um að kenna.
Fangelsisrefsingin er skilorðsbundin til tveggja ára. Fíkniefni, reiðufé, hnífar, farsími og búnaður voru gerð upptæk. Þá var manninum gert að greiða tæplega 800 þúsund krónur í málsvarnarþóknun og annan sakarkostnað.
