
Einn lést og fjórir særðust alvarlega þegar skotum var hleypt af úr bifreið í úthverfi Parísar 'i dag, að sögn franskra yfirvalda. Ríkissaksóknari Frakklands í hryðjuverkamálum hefur tekið rannsóknina yfir og kannar meðal annars hvort árásin hafi verið kynþáttamiðuð.
Grunaður maður hefur verið handtekinn og er í haldi lögreglu. Innanríkisráðherrann Laurent Nuñez sagði að skotárásirnar hefðu átt sér stað á þremur stöðum í bæjunum Trappes og La Verrière, skammt frá París.
Að sögn ráðherrans notaði árásarmaðurinn „þa[ sem virðist hafa verið hernaðarvopn, eða að minnsta kosti sjálfvirkt vopn.“
Ali Rabeh, bæjarstjóri Trappes, sagði í viðtali við sjónvarpsstöðina BFM TV að árásarmaðurinn virtist hafa skotið nokkuð tilviljanakennt á vegfarendur.
„Það er kraftaverk að fórnarlömbin skuli ekki vera fleiri,“ sagði hann. Árásarmaðurinn hefði skotið á nokkrum stöðum, meðal annars við leikvöll.
Rabeh sagði að sá sem lést hefði verið af afrískum uppruna og að einn þeirra sem særðust alvarlega væri af norður-afrískum uppruna.
Rannsaka hvort árásin hafi verið kynþáttamiðuð
Ríkissaksóknari Frakklands í hryðjuverkamálum hefur hafið rannsókn á nokkrum mögulegum brotum, þar á meðal morði í tengslum við hryðjuverkastarfsemi. Einnig verður kannað hvort árásin hafi verið framin vegna raunverulegs eða ætlaðs kynþáttar, þjóðernis, ríkisfangs eða trúar fórnarlambanna.
Skotárásin á sér stað þegar Frakkar búa sig undir enn einn dag mótmæla á laugardag vegna hækkandi framfærslukostnaðar. Stór söfn hafa ákveðið að loka og stjórnvöld ætla að fjölga öryggisgæslu verulega til að koma í veg fyrir að ofbeldið frá mótmælunum í síðustu viku endurtaki sig. Óeirðirnar vöktu mikla skelfingu í landinu.
