
Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur og fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, segir hættu á frekari eldvirkni við Grindavík enn vera fyrir hendi meðan landris heldur áfram á svæðinu. Hann segir ómögulegt að fullyrða að eldvirkni sé lokið og að ekki sé hægt að slá á hættuna að svo stöddu.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu Ara Trausta, þar sem hann fjallar um landris og eldgosavá á svæðinu norðan og vestan við Grindavík, meðal annars við Svartsengi og Bláa lónið.
Ari Trausti segir Veðurstofu Íslands réttilega gefa út áframhaldandi viðvaranir í ljósi þess að kvika streymi enn inn í kvikusöfnunarsvæðið, þótt innflæðið hafi farið hægt minnkandi. Hann segir viðvaranirnar samræmast ábyrgð stjórnvalda á öryggi almennings, varúðarreglunni og þeim mæligögnum sem liggja fyrir.
„Enginn vafi leikur á að hættan á eldvirkni á umræddum slóðum er fyrir hendi allt þar til landris hættir og kyrrð fylgir í nokkurn tíma,“ skrifar hann.
Bendir á fordæmi frá Kröflu
Ari Trausti segir óvíst hvenær landris stöðvast og hvort það muni leiða til þess að hættan minnki. Hann bendir á að óþekkt sé hversu mikla spennu jarðlögin á umbrotasvæðinu geti þolað áður en frekari atburðir verða.
Hann segir aðeins eitt þekkt dæmi um sambærilegt ferli: lok landriss í Kröflu eftir eldgosið árið 1984. Þá tók við langt tímabil þar sem landris varð sífellt hægara þar til það stöðvaðist að lokum.
Ari Trausti vonast til að þróunin verði með sama hætti við Grindavík og Svartsengi á næstunni, þannig að landris hægi enn frekar á sér og stöðvist án frekari eldsumbrota.
Hann leggur þó áherslu á að ekki sé hægt að fullyrða að sú verði raunin.
„Farsælast er að eins fari nú og á næstunni, í og við Grindavík. „Þess óskum vér öll“,“ skrifar Ari Trausti.
