
Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um rúm þrjú prósentustig milli mánaða samkvæmt nýjustu könnun Maskínu. Flokkurinn mælist nú með 21,9 prósenta fylgi, samanborið við 25 prósent í síðustu könnun.
Greint var frá niðurstöðum könnunarinnar í hádegisfréttum Bylgjunnar.
Samfylkingin er áfram stærsti flokkur landsins og mælist með 28,6 prósenta fylgi. Það er rúmlega prósentustigs aukning frá síðasta mánuði. Munurinn á Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum hefur því aukist.
Miðflokkurinn mælist með 13,4 prósent og Viðreisn með 11,4 prósent. Framsóknarflokkurinn fær 7,9 prósenta fylgi og væri einnig öruggur með þingmenn.
Flokkur fólksins, Vinstri græn, Sósíalistaflokkurinn og Píratar mælast allir undir fimm prósenta viðmiðinu fyrir úthlutun uppbótarsæta.
