
Húsleitin hjá Ölgerðinni og grunsemdir um alvarlega brot hafa valdið miklum titringi í hluthafahópi Meta, eiganda Ölgerðarinnar. Aðaleigandinn Bogi Þór Siguroddsson er talsmaður heiðarlegra viðskipta og í erfiðri stöðu vegna meintra brota. Þyngsta ábyrgð í málefnum Ölgerðarinnar ber stjórnarformaðurinn, Andri Þór Guðmundsson, sem jafnframt er fyrrverandi forstjóri félagsins og helsti hugmyndafræðingur þess. Andri Þór er jafnframt formaður Viðskiptaráðs þar sem situr hver silkihúfan upp af annarri, situr í 38 manna stjórn þar sem helstu forsvarsmenn banka, stórfyrirtækja og tryggingafélaga eiga sæti. Meðal áhrifamanna í stjórn Viðskiptaráðs eru Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins og Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar. Vera þeirra kallar ákveðinn vanda yfir ritstjórnir fjölmiðlafyrrtækja þeirra þegar kemur að umfjöllum um það hvernig ölið var selt. Hætt er við að hrollur sé í fólki, sem situr í stjórn þessa helsta fínimannaklúbbs Íslands, þegar yfir leiðtoga þeirra vofa svo alvarlegar ásakanir serm raun ber vitni. Viðskiptaráð hefur gefið sig út fyrir að halda utan um samvisku íslensks viðskiptalífs. Málið er sannkölluð hrollvekja fyrir Andra og hans fólk ...