1
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

2
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

3
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

4
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

5
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

6
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

7
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

8
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

9
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

10
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Til baka

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Stefán Pálsson varar við því að almenningsbókasöfn verði undir í breytingum

Hildur Björnsdóttir
Hildur BjörnsdóttirStefán skýtur föstum skotum á borgarstjórann
Mynd: BHJ

Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, gagnrýnir viðbrögð Hildar Björnsdóttur borgarstjóra við gagnrýni á tillögur um framtíð Borgarbókasafns Reykjavíkur. Hann segir samrekstur almenningsbókasafna og skólabókasafna geta gengið vel, en varar við því að almenningsbókasöfn verði einfaldlega felld inn í skólabókasöfn.

Í færslu á Facebook bendir Stefán á að Hildur hafi svarað gagnrýni á tillögur menningarráðs um rekstur Borgarbókasafnsins með því að vísa til lélegs lesskilnings fullorðinna. Hann telur aðra skýringu geta verið þá að borgaryfirvöld hafi ekki komið hugmyndum sínum nægilega skýrt á framfæri.

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta,“ skrifar Stefán og spyr jafnframt hvort skynsamlegt hafi verið að reka alla upplýsingafulltrúa borgarinnar.

Stefán segir þó mikilvægt að ræða málefni bókasafna af yfirvegun. Hugmyndir um samrekstur útibúa Borgarbókasafnsins og skólabókasafna séu ekki nýjar af nálinni. Slíkar hugmyndir hafi meðal annars verið ræddar á síðasta kjörtímabili og þeim komið í framkvæmd á Kjalarnesi, þar sem fámennið geri sameiginlegan rekstur að álitlegum kosti.

Hann nefnir Dalskóla í Úlfarsárdal sem dæmi um farsæla útfærslu. Þar er tenging milli grunnskólans, sundlaugarinnar, útibús Borgarbókasafnsins og íþróttahúss hverfisfélagsins. Að hans mati sýnir dæmið hvernig öflugt hverfabókasafn getur jafnframt sinnt hlutverki skólabókasafns.

Stefán leggur hins vegar áherslu á að ekki sé hægt að ganga út frá því að sama fyrirkomulag virki í hina áttina, það er að færa almenningsbókasöfn inn í skólabókasöfn. Slíkt hafi verið reynt víða á landinu og árangurinn að hans mati yfirleitt verið slakur.

Hann bendir á að nútímabókasöfn séu ekki eingöngu staðir þar sem fólk nálgist bækur, heldur einnig menningarstofnanir og samkomustaðir fólks á ólíkum aldri og með mismunandi áhugamál. Þar fari fram fjölbreyttir viðburðir á mismunandi tímum dagsins, sem geti reynst erfitt að samræma starfsemi skóla eins og þeir séu reknir í dag.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

Jódís Skúladóttir sakar ríkisstjórnina um hroka
„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París
Heimur

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása
Heimur

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Innlent

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

Jódís Skúladóttir sakar ríkisstjórnina um hroka
Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum
Pólitík

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum

Loka auglýsingu