1
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

2
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

3
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

4
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

5
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

6
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

7
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

8
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

9
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

10
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Til baka

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

Jódís Skúladóttir sakar ríkisstjórnina um hroka

Jódís Skúladóttir
Mynd: Alþingi

Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingkona Vinstri grænna frá Fellabæ, gagnrýnir harðlega fyrirhugaðar breytingar á Loftbrú, sem fela í sér að núverandi 40% niðurgreiðsla á flugfargjöldum verði leyst af hólmi með fastri niðurgreiðslu að upphæð 7.000 krónur fyrir hvern fluglegg. Hún segir breytingarnar auka kostnað landsbyggðarfólks og ganga gegn markmiðum um jöfnun búsetuskilyrða.

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“ skrifar Jódís í Facebook-færslu þar sem hún gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir að bregðast við auknum kostnaði við Loftbrú með því að skerða niðurgreiðslur.

Hún tekur dæmi um flugmiða sem kostar 50.000 krónur. Með núverandi fyrirkomulagi fáist 20.000 króna niðurgreiðsla, en samkvæmt nýja kerfinu verði hún 7.000 krónur. Það þýði 13.000 króna aukakostnað fyrir aðra leiðina og 26.000 krónur fyrir ferð fram og til baka.

„Þetta er auðvitað ekki skattur í lagalegum skilningi. En fyrir heimilið sem þarf að greiða reikninginn er niðurstaðan sú sama. Hærri kostnaður vegna búsetu,“ skrifar hún.

Segir fjárheimildir ekki hafa fylgt verðlagi

Í færslunni bendir Jódís á að kostnaður ríkisins vegna Loftbrúar hafi numið um 740 milljónum króna árið 2025, en fjárheimildir hafi verið 600 milljónir. Hún segir hins vegar að fjárheimildirnar hafi ekki verið verðbættar og að samkvæmt útreikningum sem Austurfrétt hafi fjallað um þyrftu þær að vera um 860 milljónir króna til að halda sama raunvirði og við upphaf verkefnisins.

„Það er því ekki bara Loftbrúin sem hefur orðið dýrari. Stjórnvöld hafa látið fjármögnun hennar rýrna að raunvirði,“ skrifar Jódís.

Hún rifjar jafnframt upp að hún hafi á sínum tíma lagt fram fyrirspurn á Alþingi um Loftbrú, meðal annars hvort fjölga ætti þeim sex flugleggjum sem hver einstaklingur getur fengið niðurgreidda á ári. Í svari þáverandi innviðaráðherra árið 2022 hafi komið fram að aukin notkun gæti gefið tilefni til endurskoðunar, þótt það væri háð fjárveitingum.

Gagnrýnir áhrif á fólk sem þarf að ferðast með skömmum fyrirvara

Jódís segir breytingarnar koma misjafnlega niður á fólki. Þeir sem nái að kaupa ódýrustu flugmiðana geti fengið meiri afslátt en áður, en þeir sem þurfi að kaupa dýrari miða fái minni niðurgreiðslu.

Hún nefnir sérstaklega fólk sem þurfi að ferðast með skömmum fyrirvara vegna veikinda, fjölskylduaðstæðna eða annarra brýnna erinda.

„Það eru nokkrir dagar síðan ég fjallaði ítarlega um þetta! Þarna liggur óréttlætið,“ skrifar hún.

Jódís gagnrýnir jafnframt þau rök að breytingarnar geti haft jákvæð áhrif á verðbólgu og spyr hvernig skerðing á niðurgreiðslum samræmist markmiðum stjórnvalda um jöfnun búsetuskilyrða.

„Ætlar ríkisstjórnin í alvöru að selja landsbyggðarfólki skerðingu á niðurgreiðslum sem framlag til baráttunnar gegn verðbólgu? Hvílíkur hroki!“ skrifar hún.

Að lokum segir Jódís að Loftbrú hafi verið komið á til að draga úr aðstöðumun vegna búsetu, bæta aðgengi að þjónustu og gera innanlandsflug að raunhæfari samgöngukosti.

„Það er ekkert náttúrulögmál að fjárheimild sem hefur rýrnað að raunvirði verði að standa óbreytt. Það er pólitísk ákvörðun. Rétt eins og það er pólitísk ákvörðun að láta landsbyggðarfólk greiða mismuninn,“ skrifar hún.

Hún lýkur færslunni á orðunum: „Kaldar kveðjur úr stjórnarráðinu. Reikningurinn sendur út á land.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París
Heimur

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása
Heimur

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása

Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

Jódís Skúladóttir sakar ríkisstjórnina um hroka
Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum
Pólitík

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum

Loka auglýsingu