Nær öll bílastæði við kaffihúsið á Sólheimum eru full þennan góðviðrisdag. Gestir sitja úti og njóta góðra veitinga og veðursins og sumir eru á gangi á þessum gróðursæla stað á Suðurlandi en Sólheimar eru sjálfbært samfélag þar sem rúmlega 100 einstaklingar búa og starfa saman. Eins og segir á heimasíðunni er þar rekin öflug félagsþjónusta þar sem einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn er veitt tækifæri til atvinnu og starfsþjálfunar, búsetu, félags- og menningarstarfs. Það var Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir sem stofnaði Sólheima árið 1930 en hún hafði í nokkur ár stundað nám í Danmörku, Sviss og Þýskalandi meðal annars í uppeldisfræði, barnahjúkrun og rekstri barnaheimila og var fyrsti Íslendingurinn sem lærði umönnun þroskahamlaðra.
Á heimasíðu Sólheima segir meðal annars:
„Sólheimar voru stofnaðir sem barnaheimili, einkum fyrir börn sem bjuggu við erfiðar heimilisaðstæður svo sem foreldramissi eða veikindi foreldra. Einnig voru tekin börn til sumardvalar.“ Haustið 1931 kom fyrsta barnið með þroskahömlun að Sólheimum en þá voru engin úrræði til á Íslandi fyrir þroskaskerta og á síðunni stendur að þess voru dæmi að slíkt fólk væri geymt í útihúsum.
Úr sögulegum heimildum fyrir Sólheima kemur fram að árið 1934 voru skráð „11 heilbrigð börn og 8 fávitar, auk sumardvalar barna“ og árið 1936 „10 börn heilvita, 14 fávitar, auk barna í sumardvöl“. Starfsmannaskortur var mikill á árunum 1942 - 1944. Eftir stríð voru nær eingöngu þroskaheftir á Sólheimum, auk fósturbarna Sesselju og sumarbarna. Árið 1952 voru skráðir 16 fatlaðir, 1956 25 fatlaðir og 1964 45 fatlaðir.“
Reynir Pétur Steinunnarson, þekktasti íbúi Sólheima, flutti þangað árið 1952 þá tæplega fjögurra ára gamall.
Peruterta og appelsínusafi
Blaðamaður var búinn að vera í sambandi við starfsmann Sólheima vegna fyrirhugaðs viðtals við Reyni Pétur og svo auðvitað við hann sjálfan. Hann hafði í síma sagst vera búinn að vinna klukkan fjögur en starfsmaðurinn fékk hann til að mæta hjálf þrjú á kaffihúsið sem lokar klukkan fimm. Tæpur klukkutími hefði ekki verið nægur tími fyrir spjallið.
Blaðamaður kaupir veitingar fyrir sig en fyrir utan að vera kaffihús, og matsalur fyrir íbúa í hádeginu, er í sama húsnæði rekin verslun þar sem meðal annars er hægt að kaupa falleg og vönduð listaverk eftir íbúa. Sum eru fjöldaframleidd og má þar nefna vandaða fugla úr postulíni og alls kyns fígúrur sem skreyttar eru á fallegan og vandaðan hátt. Og inni við aðaldyrnar er stór stytta af Reyni Pétri sem nokkrar mínútur yfir hálfþrjú gengur svo sjálfur í stuttbuxum og stuttermabol ákveðnum skrefum inn í húsið og við heilsumst með knúsi þótt við höfum aldrei hist áður. Blaðamaður spyr hvort það megi ekki bjóða honum eitthvað að borða og drekka. Hann velur perutertusneið og appelsínusafa.
Miðaldra maður gengur inn og Reynir Pétur snýr sér að honum.
„Hún ætlar aldeilis að veiða upp úr mér. Ég veit þessa aðferð. Kaffi og koma ofan í mig og koma upp upplýsingum.“
„Þær flæða þá upp,“ segir maðurinn.
„Já, þú veist það,“ segir Reynir Pétur.
Blaðamaður minnist eins og oft er gert á gott veðrið þennan dag.
„Veðrið er mjög gott. Ég fór í hjólatúr í gær út að Minni Borg. Þú veist hvar Minni Borg er. Ég fór efri leiðina og kom neðri leiðina til baka. Fór svona stuttan hjólatúr.“
Hvað var hann lengi á leiðinni?
„Innan við klukkutíma. Þetta var smá hringur.“
Þetta hefur verið gaman.
„Þetta var ágætt.“
Við setjumst við eitt borðið og kökudiskar og appelsínusafafernur fyrir framan okkur. Annar maður gengur hjá og heilsar Reyni Pétri.
„Blessaður. Ég fékk gest.“
„Nú?“ segir maðurinn.
„Enda var það líka best. Að fá þennan gest.“
Boð og bönn
Það var haustið 1948 sem Reynir Pétur kom í heiminn í Reykjavík.
„Bíddu róleg. Nú skulum við athuga svo þú vissir um söguna mína áður. Ég fékk heilahimnubólgu þegar ég var lítill. Ég var þriggja fjögurra mánaða. Ég var baby. Veikin virðir ekki landamæri. Svo kom heimildarmynd um mig 2010 og það var viðtal við Gunnu, systur mína. Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður. Heilbrigt barn. Fínt barn. Svo bara varð hann veikur. Mjög veikur. Upp úr því verður þroskinn svolítið öðruvísi. Þetta var stór heilli,“ segir hann og á við fyrrnefnt viðtal við systur sína, „en þá vissi ég að ég var algjörlega í lagi þegar ég fæddist. Og ef ég hefði verið í lagi, ekki veikst, alist upp í bænum kannski, hitt konu og eignast börn. En æi, það kom bara veiki. Enda tók veikin mörg börn undir sig. Af hverju? Þetta var faraldur. Þetta er eins og flensa. Kíghósti. Nefndu það. Þetta flyst á milli landa. Ég veit ekki hver fjandinn það er. Bara óheppni má segja. Ég spurði svo systur mína hversu veikur ég var. Ég hélt ég hefði verið smá veikur. Nei. Hún sagði: „Þú varst mjög veikur. Þú varst næstum því farinn.“ Svo ég hugsaði ég slapp samt vel. Kem hingað og alist upp hér. Ég kem ekki fyrr en hvað þriggja ára. Ég var að verða fjögurra ára. Þá var Sesselja forstöðukona en hún gat verið svakalega ströng. Ég spurði einu sinni systur mína hvort hún vissi hvort foreldrar mínir reyndu að spyrja Sesselju að fá drenginn yfir helgi. Já. Það var reynt. Og hún neitaði.“
Reynir Pétur á stóra fjölskyldu sem er dugleg að heimsækja hann, bjóða honum heim og fara í bíltúra með hann en hálfsystkinin eru sjö. Reynir Pétur er spurður um æskuminningar.
„Ég hafði gaman af mörgu. Það voru kringlótt tæki úti í geimnum eins og kúluboltinn minn. Þetta var svona bolti með hring utan um og það voru margir gluggar á þessu. Þetta var á fjórum fótum,“ segir hann og á við geimfar. „Þetta var alveg meiriháttar,“ segir hann með áherslu. „Og ég hafði gaman af mörgu. Ég hafði gaman af fánum. Ég hafði gaman af músík. Ég hafði gaman af mörgum hlutum. Ég var með alls konar hugmyndaflæði. Ég ólst upp á Sólheimum en auðvitað voru stundum þröskuldar sem maður steig á. Sem maður steig á glerbroti. Það voru boð og bönn og þú áttir að fara eftir reglum og ef þú gerir ekki svona þá færðu skammir. Og allt eftir götunum. Þú þurftir að fara eftir reglum. En ég fann ekki mikið fyrir því af því að ég var svo bissí af áhugamálum. Hefði ég ekki verið með áhugamál þá hefði ég verið að spá í spilin. Ég var bara bissí sem betur fer. En annars hafa Sólheimar gefið mér mikla ferska minningu. Ég fór oft í göngutúra í gamla daga. Þá var skylda að fara út. Það var farið með börnin út að labba. Og ég lenti í því að vera sem eitt af börnunum. Þetta var skylda.“
Voru mörg börn á Sólheimum á þessum tíma?
„Já já. Ég man ekki hvað þau voru mörg en það var svolítið góður slatti af börnum. Hefur hangið yfir svona þrjátíu manns með öllu.“
Ekki nógu stórt
Reynir Pétur segir að margir strákar hafi verið saman í herbergi.
„Þegar ég var fyrst á miðhæðinni voru svolítið blönduð kyn vegna þess að við vorum svo ung. Svo þegar ég fór að eldast og börnin voru orðin þetta gömul þá var farið á strákadeild. Ég fór á neðstu hæðina til strákanna. Ég hef verið innan við tíu ára. Fyrst bjuggu margir strákar saman á deild og þá var bara eitt útvarp á deildinni. Og það mátti ekki eiga sértæki. Ég átti heima á Selhamri í kjallaranum. Margir strákar. Árið 1962 fluttum við í Sveinalund. Bjuggum margir strákar saman. Svo fórum við í Gimli. Þá sváfu bara tveir og tveir saman í herbergi. Og mörg ár svoleiðis. Og ég man alveg eftir því þú máttir ekki eiga sértæki. En svo man ég eftir því þegar ég fór í bæinn og ég ætlaði að kaupa nýja plötu með hljómlist. Ég var búinn að kaupa Selfosskórinn um sumarið. Ég átti ekki grammófón ennþá. Ég keypti eina plötu í viðbót í desember 1972 en þá var ég með einhverja óskhyggju. Ég óskaði mér grammófón. Útvarpstæki. Segulbandstæki. Og ég kveið fyrir hvernig á ég að bera mig að án þess að þykja vera að sníkja. Ég kveið fyrir. En ég þurfti ekkert að bera orðin því að þegar ég kom heim þá var systir mín að heilsa mér, öll systkinin náttúrlega, en ein systir mín var að flytja að heiman og sagði: „Langar þig í radíófóninn minn?“ Hún var að flytja að heiman og vildi losna við radíófóninn. Hún gaf mér hann.“
Það var fallega gert.
„Já, að sjálfsögðu. Svo lærði ég á hann, náttúrlega. Svo þurfti ég að spila plötuna mína sem ég var að kaupa. Gaman. Stjúpi minn gaf mér margar harmonikkuplötur ofan á þetta.
Svo var ég voðalega ástfanginn af gömlum útvarpstækjum áður en ég eignaðist sjálfur tæki. Þess vegna sagði ég að ég óskaði mér grammófón og útvarsptæki en ég fékk svo radíófón sem var bara mjög fínt. Svo man ég eftir að ég hringdi í Þjóðarsálina og var að auglýsta eftir einhverju útvarpstæki. Manstu eftir gömlum útvarpstækjum? Þessum stóru feitu. Ég hringdi og auglýsti þetta. Næstu daga hringdi maður til mín og sagði: „Sæll og blessaður, ég heyrði í þér í Þjóðarsálinni um daginn, þú varst að spyrja eftir gömlu útvarpstæki. Heyrðu, við hjónin ætlum að heimsækja þig á morgun.“ Ég hlakkaði til morguns. „Hvar eigum við að hittast?“ „Niðri í Sunnu.“ Svo náði maðurinn í útvarpið í skottið og ég hugsaði „er það ekki stærra en þetta?. En ég sagði það ekki,“ segir Reynir Pétur prakkaralega. „Svo tók ég við tækinu og átti það í stuttan tíma. Ég gat ekki átt það lengi. Af hverju? Það var ekki nógu stórt,“ segir hann og hlær. „Ég gaf það. Ég gat ekki átt það. Við fengum rafmagn 1956. Við vorum með heimatilbúið rafmagn. Þetta var mótorskúr hérna á milli beggja húsa, þetta var tengt við vindmylluna okkar og það þurfti að útvega rafmagn. Það var ekki stórt rafmagn. Svo fengum við alvöru rafmagn. Það voru lagðir rafmagnsstaurar. Ég hafði líka áhuga fyrir því þegar rafmagnsstaurarnir komu,“ segir Reynir Pétur og lækkar röddina. „Ég hafði dálæti á símastaurum sem voru líka voða sætir staurar. Þetta þótti mér æðislega sætt. Það var líka hluti af gamaninu hjá mér. Svo var ég með alls konar skrýtnar dellur. Ég var með áhuga á gömlum skurðgröfum. Hvað á maður að segja,“ segir Reynir Pétur og kímir. „Fólk verður bara hissa. Ég var með alls konar áhugamál. Ég var með flugvéladellu. Ég var með fánadellu, kúluboltadellu og svo furðudýradellu. Ég var svo bissí. Ég var svolítið hrifinn af gömlu bílnúmerunum. Manstu eftir þessum svörtu? Þau voru rosaleg. Tilgangurinn minn var ekkert að reyna að muna öll númer. Stundum festust númer af því að bíllinn var þá oft á staðnum. En það sem skiptir máli er að þetta voru falleg svört spjöld með tölustöfum. Áttan var alveg kringlótt og eins að neðan og uppi og einn var bara strik. Ekki með neitt hak. En svo var ég líka hrifinn af gömlum almanökum. Manstu eftir þeim? Þau voru þannig að þú rífur af hverjum degi. Þá var ég alltaf að safna dagatölum. Ég var klikkaður. Hefði ég ekki fengið þessar dellur hefði ég farið að spá í og orðið öfundsjúkur. Ég á það til. Ég hef haft svo margt sem deyfir þetta.“
Selurinn Snorri í uppáhaldi
Börnin á Sólheimum lærðu meðal annars að lesa, skrifa og reikna. „Ég var lengi að læra,“ segir Reynir Pétur um lesturinn og bætir við að hann hafi fengið kennslu inni í Hvílunni.
„Svo var ég á skólabekk uppi á Selhamri en það gekk alveg. Ég held það hafi verið mest þegar Ingimundur Stefánsson kemur og hann kemur 1965. Þá fór allt að komast á ferð. Ég kunni svona hrálega. Varla. Ég skrifaði þá oft vitlaust. Svo fékk ég mikla slípun hjá þessum manni. Í reikningi líka. Svo vorum við í handavinnu í skólanum á veturna, þú veist prjóna og svo vefa. Svo líka að hekla. Ég hlakkaði alltaf til á laugardögum en þá þurftum við ekki að læra. Þá var bara spilað lúdó. Að leika okkur. Ekki að reyna að lesa neitt. Ég var þá ekki orðinn fulllæs. Ég skrifaði oft vitlaust. Svo lærði ég það ekki fyrr en 1965. Þá fór ég að styrkjast í lestri og stafsetningu. Og reikningi.“
Reynir Pétur er spurður hvað honum hafi fundist vera skemmtilegast að læra.
„Þetta var allt gott. Reikningurinn var skemmtilegur.“
Hvað hefur hann aðallega lesið í gegnum tíðina?
„Það eru fræðirit. Bæði um geimvísindi og um fána og lesið heimildir um tækni og vísindi. En ekki glæpasögur.“
Hvaða bók er í uppáhaldi?
„Ég held reyndar upp á bókina Selurinn Snorri.“
Af hverju?
„Já, af hverju? Það var þannig í kringum 1960 þá vorum við að bíða eftir mat í almenningnum og þá voru einhver myndablöð og bækur. Og ég komst í þessa bók og skoðaði myndir. Það voru æðislega fallegar myndir. Og það situr í mér þessi fallega minning. Þetta er svona sögubók. En ég kunni þá ekki að lesa en myndirnar sögðu mikið. Kannast þú við bókina Selurinn Snorri?“
Það var ýmislegt gert og segist Reynir Pétur oft hafa leikið í leikritum.
„Þá lék ég einn af dvergunum í leikriti sem heitir Lífsvatnið. Kannast þú við það? Svo var annað leikrit sem ég veit ekki hvað heitir og þá var ég froskurinn. Þetta var tenging við það að prinsessan hún missir, hvað heitir það sem hún setur á puttann?“
Hring?
„Já, einhvers konar hringur. Og hún missir í brunninn. Og ég átti að sækja þennan hring upp úr brunninum. Og ég lék froskinn. Kannast þú við þessa lýsingu? Svo um 1959 þá fékk einn strákurinn fallegan sleða. Veturinn 1959 snemma. Og þá voru margar brekkur hérna. Og ég fékk aðgang að sleðanum og gat rennt mér hérna niður. Svo man ég líka í kringum 1956 eða 1957 eða einhvern tímann nálægt því. Við vorum með róluvöll og vorum alltaf að róla okkur sem var líka gaman. Þá voru tvær rólur. Eitt heildartæki og svo tvær rólur á þessu. Og ég var alltaf að róla mér. Svo fengum við líka að vega salt.“
Reynir Pétur segist hafa verið með minnimáttarkennd áður fyrr.
„Jú jú. Sennilega tengist það að maður var strítt. Og þá tekur börnin til sín. Svona skrýtið. Og alls konar hugmyndaflug.“
Hann segir að fleirum hafi verið strítt.
„Það fengu margir að finna fyrir því.“
Jólasveinar einn og átta
Reynir Pétur segir að framan af hafi hann verið á Sólheimum um jólin og var margt gert til að gera þau heimilisleg og hátíðleg þótt fjölskyldur sumra barnanna væru víðs fjarri. Börnin máttu ekki verja jólunum með fjölskyldum sínum fyrstu árin sem Reynir Pétur bjó á Sólheimum.
„Þau voru æðisleg. Hún hafði mjög falleg jól,“ segir hann og á við Sesselju. „Jólin í dag finnst mér ekki jafnast á við þá fegurð sem jólin voru þá. Þarna var Sesselja algjörlega í sínu veldi og þar var hún sem best. Hún var ekki fánakona. Skrýtið samt. En hún átti margar bjartar hliðar líka. Við fengum ekki jólagjafirnar um kveldið, aðfangadagskvöld. Við fengum þær á jóladag. Þess vegna var nóttin oft erfið.“
Var lítið sofið á jólanótt?
„Já, þú getur ímyndað þér. Að fá pakkana á morgun! Þetta var skelfilegt. Svo fórum við upp í sal og svo fékkstu ekki pakka fyrr en allir voru komnir í salinn. Og þegar þú færð pakka núna þá máttu ekki fara heim strax. Þú verður að bíða þar til allir eru búnir að fá pakkana sína. Svo fór ég heim með pakkana og byrjaði titrandi að opna pakkana og var að þukla á þeim náttúrlega og var að vonast að sem flestir væru harðir. En mjúkir pakkar geta líka verið góðir. En þú sérð hvernig börn hugsuðu. Þau vilja bara leikföng. Það er best.“
Hann hlær.
„Ég man þegar við fórum að fá jólapakka frá jólasveininum. Við vorum að mæta uppi í sal hjá jólasveininum. Og ég sá bunka af pökkum. Allir voru að koma og ég hugsaði „ég vona að þessi stóri sé minn“. Svo tók hann upp pakka og sagði „Reynir“. Mér brá við. Ekki stærri en þetta? Og svo var ég að klípa í pakkana eins og börn gera. Þau vilja helst bara harða pakka, börnin.“ Reynir Pétur hlær.
Negldur í moldina
Drengurinn óx úr grasi á Sólheimum og unglingurinn varð ungur maður.
„Við vorum að læra að vinna. Ég held það hafi verið í kringum 1960 eða svona slefandi þá lendir maður í því að þurfa að hjálpa til. Gera eitthvað að gagni. Ég hef gert margt. Ég hef verið í byggingavinnu. Heyskap. Þetta var blönduð vinna. En 1966 þá liggur við að mér hafi verið skyldað að vinna. Þú átt að vinna með honum í garðyrkjunni. Ég var negldur í moldina. Liggur við að ég segi það. Ég kalla að ég er með græna fingur eða ég geti líka sagt brúna fingur af moldinni. Svo ég segi græna og brúna fingur. 1966. Núna er 2026. Halló amen. Sextíu ár.“
Þrátt fyrir að Reynir Pétur sé orðinn sjötíu og átta ára þá tekur hann enn að sér ýmis verk.
„Ég er ekki að vinna mikla skítavinnu út af því að ég er með mæði og þá hef ég verið að gera létta vinnu. Ég hef verið látinn taka smá það sem til fellur. Svo hef ég verið að gera myndlist líka.“
Blaðamaður nefnir hvað listaverk íbúa eru falleg.
„Sástu listaverkið sem ég gerði? Það heitir Landslagsheimur. Það eru tuttugu og átta myndir á vegg. Það fer ekki fram hjá þér. Ef þú skoðar þá heitir það Landslagsheimur. Ég, Reynir Pétur.“
Var hann þá í garðyrkju í áratugi?
„Já, alveg svoleiðis. Ég var þrællímdur.“
Þannig að það var hans aðalstarf.
„Það má bara segja það. Það er verið að rækta alls konar. Hvað ég hef þurft að gera var allavegana. Stundum var það að þurfa að keyra skít. Þá var einhver sem kom með skít og setti hrúgu hérna og ég þurfti að keyra í hjólbörum skít. Eina hjólböru í hvert bil. Og svo þurfti að vinna jarðveginn og svo útbúa beð og fram eftir götunum. Og það sem ég gat gert. Svo lærði maður þetta. Svo fór maður að læra að vinna við þetta.“
Þannig að Reynir Pétur hefur verið í þessu frá því hann var ungur maður.
„Já, ímyndaðu þér.“
Hvað fannst honum vera skemmtilegast að gera í garðyrkjunni?
„Mér fannst voða gaman að vökva plönturnar og líka að afblaða. Svo náttúrlega að reita arfa. Það sem til fellur. Það er svo margt sem er skemmtilegt. En þegar ég keyri skítinn inni í gróðurhúsi þá vil ég alltaf hafa jafnt á milli hrúga. Þá fæ ég að vita hvað hann vill margar hjólbörur í beð. Hann segir „ég vil átta hjólbörur“ og reikna ég vegalengdina og deili í átta og get þá búið til hrúguhjalla. Núna erum við með skiptinema sem keyra skít. Svo hef ég líka verið með einhvern augnkvilla. Mér finnst líka gott að tala um það. Árið 1967 fékk ég fyrst tvísýni. Sjá tvöfalt. Og mér stóð til boða 1971 að fara í aðgerð en einhvern veginn asnaðist ég að þora ekki að fara sem var bara della hjá mér. Ég fór ekki fyrr en 1984. Það var út af því að sjá tvöfalt. Þetta var hræðsla hjá mér en svo fór ég. Hoppaði út í djúpu laugina. Svo fékk ég eitthvað í augun á mér 1995. Ég veit ekki hvað ég á að kalla það. Á ensku heitir það „eye floaters“. Hefur þú heyrt það nefnt? Hvernig á ég að lýsa því. Það er eins og ef ég horfi á ljósa fleti og hreyfi augun til, sérstaklega ef grunnurinn er ljós eins og til dæmis á hvítu tjaldi eða í tölvunni eða labba úti í snjó, þá sé ég smá þræði synda inni í augunum. Þetta hef ég lesið um að gæti komið og verið andskotann lengi. Þetta hefur valdið mér leiða. En núna eru margar leiðir sem ég sé á netinu sem hægt er að gera. Sem betur fer,“ segir Reynir Pétur með áherslu.
Það er svo margt hægt að gera.
„Það er nefnilega það.“
Til okkar kemur eldri maður sem styður sig við göngugrind.
„Er loksins verið að fara að gefa út ævisöguna?“ segir hann.
„Já, það er verið að pumpa mig upp,“ segir Reynir Pétur hressilega.
„Það er kominn tími til,“ segir maðurinn góðlega.
„Veistu hvað hún gerði?“ segir Reynir Pétur. „Hún er sniðug. Hún splæsti á mig kaffi og kom þessu ofan í mig. Þá koma fréttirnar upp úr mér í staðinn.“
„Þessi maður veit ótrúlega mikið,“ segir maðurinn með áherslu og lítur á blaðamann sem nefnir að hann hafi vitað af Reyni Pétri síðan hann gekk hringinn í kringum landið árið 1985.
„Já, þú manst það,“ segir Reynir Pétur. „Hvar áttir þú heima þegar ég gekk hringinn? Getur þú ímyndað þér. Þetta er með ólíkindum. Þetta var eins og forsetinn. Það þarf engan forseta. Ekki myndi hann labba hringinn. En ég fór hann. Sólheimar hefur gefið mér mikla gleði þó maður lendi á glerbroti eins og það er kallað. Ég eignaðist góða og fallega vini sem ég vildi ekki án vera. Og þá eignaðist ég líka þegar ég var ungur.“
Og góðlegi maðurinn sem gengur hægt í burtu er einn af vinum Reynis Péturs. Hann er varla horfinn þegar erlend kona kemur að borðinu og heilsar Reyni Pétri. Það er augljóst að þau þekkjast eitthvað.
„Hi. How are you?“ segir hann. „What's your name?“
„Sofia,“ segir konan.
„Já, Sofia. So many people.“
„I don't want to interrupt you,“ segir Sofia elskulega en það er ekkert að því að vinir og kunningjar heilsi upp á Reyni Pétur.
„Where come to you from?“
„Germany.“
„Germany. Sofia from Germany. Where in Germany?“
„ Tübingen. It's near Stuttgart.“
„Já. In which state?“
„Baden-Württemberg.“
„Já. The flag is black and yellow in Baden-Württemberg.“
„Yes. Black, red and yellow.“
„Yes, that's the German flag. And Bavaria has white and blue. I know it. I love the flags.“
Það er auðheyrt að Reynir Pétur hefur rétt fyrir sér varðandi fánalitina á fána Baden-Württemberg sem er svartur og gulur. Þau spjalla eitthvað áfram og svo kveður Sofia.
„Herzlichen willkommen,“ segir Reynir Pétur.
„Sorrí,“ segir hann svo við blaðamann. „Það eru margir sem þekkja mann.“
Blaðamaður nefnir að hann sé góður í ensku.
„Já, maður reynir að vera það. Ég lærði 1963 í skólanum. Ég var ekki nógu góður í lestri en ég gat skilið í tungumálum. Gat í lestri nokkurn veginn lesið hrátt. Lærði af því að ég var að safna fánabókum líka. Þurfti að lesa um þá. Það var margt sem kom til greina.“
Hvur fjandinn
Reynir Pétur er landsþekktur maður. Árið 1985, þá þrjátíu og sjö ára gamall, gekk hann í kringum landið og fylgdist má segja öll íslenska þjóðin með. Hann vakti þá athygli á málefnum fatlaðra og safnaði pening sem notaður var svo í byggingu nýs íþróttahúss á Sólheimum.
„Ég fór þetta á sínum tíma, 1985. Þetta var yndislegt.“
Blaðamaður líkir honum við hetju sem hann vissulega er.
„Um aðventuleytið 1984 var ég spurður hvort ég myndi vilja labba næsta vor í kringum landið. Svo sagði ég að ég vildi hugsa málið um helgina hvort ég gæti þetta. Svo fór ég að hugsa um helgina. „Hvur fjandinn. Af hverju ætti ég að gera þetta?“ Ég setti fjögur sæti hvers vegna ég ætlaði að labba í kringum landið. Í fyrsta sæti að labba þjóðveg númer eitt. Í öðru sæti að sjá landið mitt. Og í þriðja sæti að opna á viðhorf fatlaðra. Svo kemur peningahliðin. Þetta eru fjögur sæti. Ég tók ákvörðun. Jú, ég held ég taki þetta.“
Reynir Pétur hafði lengi verið mikill göngugarpur auk þess að hjóla og næstu mánuði æfði hann sig fyrir gönguna miklu.
„Þú þarft að vita hvort þú réðir við það. Þú þarft að búa til æfingu. Og ég gerði það. Og ég sá það að ég gæti alveg labbað mislangt dag frá degi og gat alveg stjórnað því. Það var ekkert sem sagði þú átt að labba fjörutíu til fimmtíu. Ef ég er kominn fimmtíu kílómetra vegalengd og ég ætti bara nokkur hundruð metra að vegamótum, ég miðaði alltaf við eitthvað, þá vil ég gera það. Þetta var ekki svo erfitt. Það þurfti aðeins að undirbúa þetta og sjá hvort maður myndi ráða við þetta.“
Flott undir Eyjafjöllum
Svo rann stóri dagurinn upp, 25. maí.
„Það voru einhverjir sem löbbuðu aðeins smávegis með mér. Smá byrjun ferðarinnar.“
Hvernig tilfinning var það þegar allir voru búnir að kveðja hann og hann var einn á gangi? Þess má geta að hann var alla ferðina með fylgdarmann sem var í bíl.
„Það var líka ágætt. Ég átti svo mörg áhugamál. Ég átti til að tala við sjálfan mig þannig að þetta var bara ágætt. Það var smá gustur sem stundum gerist. Það var svolítill vindur þennan dag. En það var allt í lagi.“
Um hvað var hann að tala við sjálfan sig?
„Ég var að tala við sjálfan mig um áhugamál mín. Ég gisti á Hvolsvelli fyrsta daginn og svo labbaði ég fram hjá Vík. Svo eftir Vík fór ég í gegnum kríubelti. Það voru kríur skammt frá. Og þær voru dansandi í kringum mig, að ofan. Ég var með derhúfu og ég gáði aldrei hvort hún væri skítug að ofan. Ég reyndi að labba svolítið geyst á meðan kríubeltið var í gangi. Kríubelti! Ég kalla það kríubelti,“ segir Reynir Pétur og hlær.
Hvernig upplifði hann íslensku náttúruna?
„Það var stórkostlegt. Stórkostlegt,“ endurtekur hann með áherslu. „Ég myndi ekki vilja sleppa því.“
Hvað stendur upp úr varðandi náttúruna?
„Mér fannst voðalega gaman að sjá Suðurland og Austurland og Norðurland. Jú, og Vesturland. Mér fannst allur pakkinn vera svo dýrlegur. En það var sums staðar sem voru malarvegir. Ég fékk smá ryk frá bílunum. Moldarryk. En það var svo sem allt í lagi.“
Og hvað lærði hann svo um íslenska náttúru á Íslandsgöngunni?
„Ég bara lærði það að landið er svona og þetta er alveg guðdómlegt. Mér fannst það gefa mér hugmynd hvernig er á þessu svæði. En þú verður að athuga líka, þú sérð kannski ekki alla hluti á Austfjörðum. Þú labbar hérna og getur kannski ekki vitað hvað er annars staðar. En svo hef ég náttúrlega farið í bíl sem farþegi.“
Hvaða staður fannst Reyni Pétri vera fallegastur?
„Þú ferð illa með mig. Þetta var meira og minna. Mér fannst undir Eyjafjöllum vera alveg djöfull flott. Það var alveg svaka flott,“ segir hann með áherslu. „Austurland var líka mjög flott.“
Hvað með dýralífið?
„Það voru kindur náttúrlega hjá bæjunum, hvað heldur þú. Ég sá það. Og beljur.“
Og fuglar út um allt.
„Já, syngjandi fyrir mig.“
Var ekki fólk á bílum að stoppa og tala við hann?
„Jú, en veistu það. Takk fyrir mig,“ segir hann áður en hann heldur áfram og kyngir síðasta tertubitanum. Perutertubitanum. Setur kökudiskinn til hliðar.
„Það gat stundum verið erfitt vegna þess að þá þurfti ég að stoppa. Bara rétt snöggvast. Þetta var yndislegt. Þegar fólk var að koma og stoppuðu. Annaðhvort var það að koma á eftir mér, áfram eða á móti mér. Stoppuðu. Rétti mér pening. Hvað fannst mér skemmtilegt? Það eða þá þegar krakkarnir tóku á móti mér og löbbuðu með. Það var miklu merkilegra þegar krakkarnir löbbuðu með mér en peningurinn sjálfur vegna þess að þegar ég labbaði og þeir komu á móti mér þá fann ég meira nánd. Mér datt ekki í hug að spyrja „af hverju ertu að labba með mér?“. Nei nei nei nei nei. Ég fann það bara. Ég fann það bara og leið mjög vel yfir því. En mér fannst líka gott að vera einn. Að sjálfsögðu,“ segir hann með áherslu. „En ég vildi ekki reka, farðu heim til þín. Maður gerir það ekki. Ég vissi að þau vildu mér bara gott og nándin sem var mikils virði.“
Reynir Pétur segir að gangan hafi upphaflega verið kölluð Sólheimagangan en svo hafi heitið breyst í Íslandsgöngu.
„Svo talaði útvarpið við mig og ég sagði í útvarpinu að ég hefði viljað láta gönguna heita Íslandsganga. Svo kom út bók sem heitir Reynir Pétur og Íslandsgangan. Ég átti hugmyndina að nafninu Íslandsgangan. Sólheimgangan væri frekar ef maður væri að labba Sólheimahringinn. En að labba um Ísland, stóra gangan mikla, þá er það Íslandsganga.“
Reynir Pétur var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag árið 2024 og fékk hann riddarakross fyrir afrek og framgöngu í þágu fatlaðra. Blaðamaður óskar honum til hamingju.
„Þakka þér fyrir það. Við vorum sautján manns að fá fálkaorðu.“
Hvaða máli skiptir það fyrir Reyni Pétur að hafa fengið fálkaorðuna?
„Hann minntist bara á að ég hefði haft áhrif en minntist ekki á gönguna. Og ég náttúrlega sá það hvað það var. Það þarf ekkert að predika um það. Og það var jú mikil heilli fyrir mig að hafa fengið að finna það.“
Reynir Pétur segist ekki hafa verið hrifinn af koníakinu sem boðið var upp á heldur hafi frekar viljað að boðið hafi verið upp á kaffi, kleinur og kökur. Fálkaorðan hlýtur að vera góð fyrir sjálfstraustið eins og gangan var.
„Já. Þú getur ímyndað þér,“ segir Reynir Pétur með áherslu.
Reynir Pétur skoðar stundum fálkaorðuna sína. Setur hann hana stundum upp?
„Bara mjög spari.“
Dreymir Reyni Pétur stundum að hann sé að ganga?
„Ég er nú hræddur um það,“ segir hann með áherslu. „Það kemur fyrir. Það er góð tilfinning.“
Viðhorf til fatlaðra breyttist
Hann er þjóðhetja.
„Já, þú veist það. Þetta vakti athygli. Þetta fór að lagast. Allt þetta sem er bara fjandi gott. Peningurinn var ekki allt. Það var með. Fólk var alltaf að spyrja. Hvað eru sjö milljónir í dag? Ég segi bara sjö milljónir eru sjö milljónir stærðfræðilega. Ég svara alltaf tungumáli stærðfræðinnar. Aftur á móti segi ég hver er standardinn í dag, þessar sjö milljónir sem þú fékkst til að byggja þetta hús þá? Hvað kostar að byggja þetta hús í dag? Ég veit ekki nákvæmlega hvað það myndi geta kostað.“
Reynir Pétur segist hafa öðlast meira sjálfstraust í tengslum við gönguna.
„Ég var með mjög mikla minnimáttarkennd áður og þetta hefur aldeilis sparkað mér upp úr skónum. Gaf mér alveg feitan bita. Þetta var bara kikk. Þetta var rosalega mikil gjöf. Auðvitað voru Sólheimar heppnir að ég gerði þetta sem er náttúrlega fínt. Svo opnaði á viðhorf fatlaðra því 1980 fór viðhorf fatlaðra að byrja aðeins að lagast. Svo kom gönguárið 1985 og þá blómstraði alveg vel. Og þá fór að vera meiri athygli og meira viðhorf. Betra. Það hefur mikið lagast sem er mjög gott. Þetta var nánast annars flokks fólk. Það liggur við að ég segði það svona. Nánast. En sem betur fer fór þetta að líta á þetta fólk sem bara jafningja. Og ekkert öðruvísi.“
Má kannski segja að Reynir Pétur sé frumkvöðull í að vekja athygli á málefnum fatlaðra?
„Já, það má segja það þó það hafi verið byrjað aðeins. Það var smá svona en svo sprakk. Svo hafa fleiri farið,“ segir hann en fleiri hafa gengið hringinn til að safna fyrir ákveðin málefni.
Það mætti hugsa betur sinn gang,“ segir hann um hið opinbera og aðstoð við fatlaða. „Og ég man þegar þeim var sagt að leggja meiri áherslu á að gefa okkur meiri styrk. Og ef ég hef hitt þennan mann þá hefði ég getað sagt: „Það kemur að því að þið verðið fatlaðir. Passaðu þig bara.“ Ég myndi segja: „Passaðu þig bara.“
Hann hlær. „Ég myndi líta á okkur sem jafningja. Það er ekki munur. Við erum ekki öðruvísi fólk. Þetta er sama fólkið. Það er eins og ég segi, fólk í heiminum. Ég lít á allt fólk sem fólk þótt þú sért svartur eða hvítur eða hvort það sé samkynhneigt eða gagnkynhneigt. Það sem heitir fólk. En það eina sem getur verið skakkt innan um fólk er ef það er einn sem gerir ljóta hluti eins og gerðist í Noregi úti í Útey. Ef ég dæi þá væri ég laus við alla ljótleika heimsins og öll slys og hamfarir og alla sjúkdóma og kvilla. Þetta bara vil ég losna við. En aftur á móti myndi ég sakna minna vina og áhugamálin og trilljón hluti myndi ég sakna. Ég myndi sakna göngutúranna og myndlistina og músíkina. Ég get ekki talið upp. Það mundi ég. En núna er ég í músíkinni þótt ég hafi tekið þetta meira rólegar heldur en áður.“
Hvað heldur hann að gerist þegar fólk deyr?
„Það sem gerist, við mætum öll því sama. Við erum kannski mismunandi hrædd þó að fólk trúi mismunandi en það er bara einn sannleikur en við vitum misnærri honum. Við kristnir þykjumst svona vita best. Það er alltaf verið að tala um svört göng og að það birtist ljósbjarmi. Það er mikið talað um svona. Ég held að það sé mjög nálægt sannleikanum ef ekki bara sannleikurinn sjálfur. En allavegana mætum við saman. Guð fyrirgefur allar syndir. Ef ég hef verið vondur maður þá iðrast ég og hann fyrirgefur mér. En það sem mín refsing er, ef ég hef gert ljótt; segjum að ég drap hundrað manns sem dæmi og ég er settur í fangelsi. Þá er mín refsing þannig að þú ert ekki frjáls í fangelsi. Þú þarft að dúsa þetta í x ár. Og þegar ég er kominn yfir, ég held að allar syndir eru fyrirgefnar. Og ég held það komi að því að þú iðrist gjörða þinna. Ég trúi varla að manneskja sé til sem er algjörlega svört upp frá höfuð niður til táa. Hún hljóti að komast að því að hún verði að iðrast. Þetta getur ekki passað.“
Kiss Me Quick
Reynir Pétur hefur búið á Sólheimum í sjötíu og fjögur ár og á Sólheimum hefur hann eignast vini og má kannski segja að um sé að ræða eina stóra fjölskyldu. Eru allir vinir?
„Já, það eru sumir sem ég næ meira sambandi við en öðrum.“
Þótt Reynir Pétur vinni ekki eins mikið og áður fyrr þá hefur hann nóg að gera.
„Ég er líka að safna gömlum ljósmyndum til að gera heimildir líka. Svo það er margt sem ég er að vinna í. Mikið verkefni.“
Svo er hann fær munnhörpuleikari en hann hefur komið fram sem slíkur og spilað inn á geisladisk. Hvernig tónlist hlustar hann aðallega á?
„Það er bara fín tónlist. Það er bara kántrímúsík og þessi frá Þýskalandi og harmonikkutónlist og lúðrasveitarmúsík, svakalega flott. Svo er ég hrifinn af fullt af slögurum. Gospel getur líka verið flott. Svo er ég hrifinn af Bruce Springsteen og Elvis Presley. Þú kannast við Dolly Parton. Nefndu það. Það er fullt. Ég hef ekki tölu á fjölda.“
Hvaða lag með Elvis Presley er í uppáhaldi?
„Ef ég ætti eitt óskaleg með Elvis Presley þá myndi ég svívirðislaust taka Kiss Me Quick.“
Hvers vegna það lag?
„Laglínan er bara svo flott. Einhver spurði mig: „Hvort finnst þér skipta máli texti eða lag?“ Lagið er alltaf í fyrsta sæti. En svo kemur textinn. Og þá er spurning hvort textinn passi við lagið. En yfirleitt er það. En það getur komið fyrir að hann er ekki viðeigandi. En yfirleitt er það, að það passar við.“
Með gangráð
Hann sem gekk Íslandshringinn ferðast svolítið um á rafskutlu og hann er kominn með gangráð.
„Já, fyrir nokkrum árum var ég kominn með mæði og átti erfitt með að labba upp halla. Og af hverju? Auðvitað var maður ekki fullsáttur við það en það sem hjálpaði mér að skilja. Einhver sagði: „Þú ert orðinn gamall.“ Það er alveg skelfilegt að heyra.“
Hann er orðinn eldri maður. Hvernig leggst það tímabil ævinnar í hann?
„Ég hef oft verið að hugsa. Stundum öfunda ég unglinga að vera ekki eins hraustur. En ég fór að hugsa, á ekki frekar að snúa því við að unglingar öfundi mig? Ég er búinn að bera hrikalega, hrikalega, hrikalega reynslu. Búinn að eiga þennan tíma. Það er frekar að þeir myndu slá mig í rot fyrir öfund heldur en ég þau. Stundum er það þannig, auðvitað á ég það til að vera með afbrýðisemi og öfund, skiljanlega, af því að ég er jafnréttissinni. Ég er til dæmis á móti lottói. Ef þau þurfa að tilkynna það þá vil ég helst að það yrði sagt: „Það voru hjón sem voru að vinna í lottó sem eru stórskuldug. Stendur upp með börn.“ Það væri flott að heyra þetta því þá sé ég réttlætið.“
Í þrjátíu og tvo daga kynntist Reynir Pétur landinu sínu betur en almennt gengur og gerist. Hann kynntist veðrinu. Hann kynntist náttúrunni. Hann kynntist dýralífinu. Hann kynntist sjálfum sér. Og íslenska þjóðin fylgdist með hetjunni sem hafði sem lítið barn veikst svo alvarlega að það breytti öllu hans lífi en hann festi sig í hjarta þjóðarinnar. Það er auðheyrt í þessari heimsókn að Reynir Pétur er með stórt hjarta og það er þetta fallega hjarta sem fólki þykir svo vænt um.
Viðtalinu er lokið. Blaðamaður talar um að senda honum viðtalið til yfirlestrar áður en það birtist. Hann segist ekki vera með netfang svo það verður sent á Messenger.
„Hvað heitir þú með leyfi? Hvernig lítur kóverinn þinn út?“
Hann skrifar niður fullt nafn blaðamanns og fær að sjá forsíðumyndina á Facebook.
„Ég tek í þig. Aldeilis. Þú sleppur ekki.“
Við göngum innar í húsið þar sem fallegu listaverkin eru til sölu.
„Má ég sýna þér myndlistina? Ég ætla að sýna þér myndina áður en ég sleppi þér.“
Og Reynir Pétur sýnir listaverkið sitt stoltur, tuttugu og átta litlar landslagsmyndir sem mynda eina heild.
Við kveðjumst síðan með knúsi eins og við höfðum heilsast rúmum tveimur klukkutímum áður.
Eldri maðurinn með hreina hjartað gengur í stuttbuxunum og stuttermabolnum út í góða veðrið.
Blaðamaður ekur frá Sólheimum áleiðis til höfuðborgarinnar en kemur í leiðinni við í Hveragerði og kíkir á náttúruna rétt hjá Reykjadal. Það er komin vinabeiðni á Facebook og skilaboð.
„Sæl og blessuð og takk fyrir síðast og takk fyrir veitingar og hafðu það gott, kær kveðja þinn góði vinur Reynir Pétur.“
Hjarta fylgir með. Tveir hlæjandi broskarlar. Regnbogi.
Blaðamaður samþykkir vinabeiðnina og sendir Reyni Pétri skilaboð og myndir af nokkrum hestum sem éta gras þetta fallega sumarkvöld.
Skilaboð berast um kvöldið frá honum.
„Flott og gott, góða nótt og sofðu rótt.“
Með fylgja myndir af regnboga og hjarta.

