
Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, segist skammast sín fyrir atvik þar sem hann beit mann sem reyndi að vísa honum út eftir deilur um reykingar innandyra. Þetta kemur fram í samtali hans við tónlistarmanninn Emmsjé Gauta í þættinum Beint í bílinn, sem spyr hann út í flökkusögu um kvöldið.
Gauti rekur þá útgáfu sögunnar að Sveppi hafi fengið gistingu hjá manni á Ísafirði en ítrekað virt að vettugi óskir hans um að reykja ekki inni. Samkvæmt sögunni hafi Sveppi að lokum komið af salerni með tuttugu logandi sígarettur í munninum.
Sveppi staðfestir að atvik tengt reykingum hafi átt sér stað en segir frásögnina hafa ýkst. Sígaretturnar hafi verið fimm en ekki tuttugu. Hann tekur jafnframt fram að hann skammist sín fyrir hegðun sína.
Að sögn Sveppa var hann staddur fyrir vestan til að sinna veislustjórn á herrakvöldi hjá Boltafélagi Ísafjarðar. Eftir skemmtunina hafi hann og vinur hans farið heim til manns sem hafði verið með þeim að skemmta sér kvöldið á undan.
Sveppi segist hafa kveikt sér í sígarettu í anddyri hússins vegna kulda úti. Húsráðandi hafi brugðist harkalega við og bent honum á að reykingar væru bannaðar innandyra.
Kveikti í fimm sígarettum og beit húsráðanda
Sveppi lýsir því að hafa gert lítið úr athugasemdunum og viðurkennir að hann geti verið erfiður í samskiptum.
„Og veistu, ég get alveg verið alveg ógeðslega leiðinlegur sko,“ segir hann og lýsir sjálfum sér sem dólgi með stæla og vesen.
Í kjölfarið hafi hann sett fimm sígarettur í munninn, kveikt í þeim öllum og gengið inn í anddyrið. Húsráðandinn hafi þá reynt að koma honum út.
„Hann reif svo fast í mig, ég beit hann,“ segir Sveppi.
Málið varð enn vandræðalegra að hans sögn þegar kom að því að fá greitt fyrir veislustjórnina. Maðurinn sem hann hafði bitið hafi verið gjaldkeri félagsins.
„Ég þurfti að rukka hann á mánudeginum fyrir veislustjórnina,“ segir Sveppi.
@beintibilinn Gauti fact-checkar flökkusöguna um Sveppa og tuttugu sígaretturnar á Ísafirði 🚬 Er hún sönn? Þáttur 372 á Beintibilinn.is #Beintíbílinn #SveppiKrull #emmsjégauti
♬ original sound - Beint í bílinn
