
Natalie Becerra gerði dýrkeypt mistök þegar hún bókaði flug fyrir sig og fjölskylduna til Evrópu. Hún þurfti að greiða nærri 3.000 dali fyrir nýja flugmiða eftir að fjölskyldan missti af tengiflugi til Íslands vegna óveðurs en frá þessu greinir hún í Business insider.
Natalie hafði fundið ódýrt flug með Icelandair frá New York til Írlands með nokkurra daga millilendingu í Reykjavík. Hún bókaði flug fjölskyldunnar frá Flórída til New York sérstaklega og taldi fimm klukkustunda bið milli fluganna nægja.
Óveður varð hins vegar til þess að flugi fjölskyldunnar var aflýst. Varaflugið var síðan beint til Virginíu og fjölskyldan missti af fluginu áfram til Evrópu. Þar sem flugin voru bókuð sitt í hvoru lagi féllu síðari flugmiðarnir niður.
Fjölskyldan þurfti að kaupa nýja miða fyrir samtals 2.573 dali og kom um sólarhring síðar en áætlað var.
Natalie segir reynsluna hafa kennt sér mikilvægar lexíur um flugbókanir sem sjá má hér fyrir neðan:
Bókaðu flug með nægum fyrirvara
Hún ráðleggur fólki að koma til borgarinnar sem flogið er frá að minnsta kosti sólarhring fyrir brottför. Aukagistinótt getur verið ódýr í samanburði við kostnaðinn við að kaupa nýja millilandaflugmiða.
Kynntu þér skilmálana
Þegar flug eru bókuð sérstaklega ber farþeginn sjálfur ábyrgð á tengingunum. Flugfélag þarf almennt ekki að útvega nýjan miða ef farþegi missir af síðara flugi vegna tafa eða aflýsingar á fyrra flugi sem er á annarri bókun.
Natalie hafði heldur ekki kynnt sér breytingagjöld og endurgreiðslureglur nægilega vel. Hún segir mikilvægt að lesa skilmálana áður en gengið er frá bókun.
Athugaðu ferðatryggingarnar
Natalie fékk 952 dali endurgreidda úr ferðatryggingu kreditkorts vegna truflana á ferðinni. Hún fékk hins vegar ekki allan aukakostnað bættan, meðal annars vegna þess að hún hafði greitt fyrir flugin með tveimur mismunandi kreditkortum og uppfyllti því ekki skilyrði annarrar tryggingarinnar.
Hún ráðleggur ferðalöngum að kynna sér tryggingavernd kortanna sinna og geyma kvittanir fyrir aukakostnaði vegna tafa.
Þrátt fyrir kostnaðarsama byrjun segir Natalie að fjölskyldan hafi átt frábæra ferð. Næst ætlar hún að bóka aukagistinótt fyrir flugið til að draga úr hættunni á að missa af tengiflugi.
