
Anika Rashaun, sem áður kom fram í raunveruleikaþáttunum Real World Seattle: Bad Blood á MTV og tók þátt í The Challenge, er látin eftir baráttu við brjóstakrabbamein. Vinur hennar, Tiara Ramos, staðfesti andlátið. Rashaun var 34 ára.
„Ég missti hluta af sálu minni þegar besta vinkona mín lést,“ skrifaði Ramos í færslu á Substack fyrr í þessum mánuði en sagt var frá málinu á E News! í dag.
„Síðasta sumar greindist besta vinkona mín og systir með brjóstakrabbamein á fjórða stigi. Greiningin kom okkur í opna skjöldu.“
Ramos, sem hafði þekkt Rashaun frá barnæsku, lagði áherslu á að fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarnan hefði lifað lífinu til fulls. Rashaun giftist eiginmanni sínum, Kyle Rehn, í febrúar.
„Hún var alltaf óhrædd við að vera hún sjálf, einlæg í afstöðu sinni, sannfæringu og trú. Hæfileiki hennar til að fá því framgengt sem hún vildi, tala fólk inn á hugmyndir og sannfæra aðra var einstakur. Tryggðin og kærleikurinn sem hún sýndi vinum sínum, allt til enda, var á allt öðru stigi,“ skrifaði Ramos.
Vinir Rashaun úr raunveruleikasjónvarpinu hafa einnig tjáð sorg sína undanfarnar vikur.
Theo King-Bradley, sem tók þátt með Rashaun í The Challenge og kom fram með henni í Real World, skrifaði færslu 23. október þar sem hann sagðist loks hafa fundið orð til að lýsa sorg sinni.
„Ég hef gert allt annað til að reyna að hugsa ekki um þá staðreynd að þú ert ekki lengur hér,“ skrifaði King-Bradley við mynd af þeim saman á Instagram. „Ég hef verið virkilega sár og dapur síðan ég frétti að þú værir látin. Mér þykir leitt að hafa ekki fengið að sjá þig einu sinni enn. En ég get yljað mér við síðustu samverustund okkar og samtalið sem við áttum og rifjað það upp í huganum til að brosa.“
Líkt og Ramos lagði King-Bradley áherslu á hvernig Rashaun hefði ekki aðeins víkkað eigin sjóndeildarhring heldur einnig haft jákvæð áhrif á fólkið í kringum sig.
„Þú varst alltaf hreinskilin við mig og sagðir mér það sem ég vildi ekki heyra. Þess vegna bar ég svo mikla virðingu fyrir þér,“ skrifaði hann. „Allt frá því að við tókum þátt í okkar fyrsta þætti saman til þess þegar þú varst með mér í fyrstu utanlandsferðinni minni.“
Eftir sjónvarpsferilinn sneri Rashaun sér að störfum sem stefnumótaráðgjafi og ráðgjafi í blaðadálki.
Hún hafði áður greint frá því á samfélagsmiðlum, í færslu á síðasta ári, að hún væri í baráttu við krabbamein. Þá greindi hún jafnframt frá jákvæðum tíðindum í veikindunum: æxlisvísar hennar höfðu lækkað í október 2025.
Við færsluna, þar sem hún deildi einnig myndum af ýmsu sem hún hafði tekið sér fyrir hendur um haustið, skrifaði hún: „Frábærar fréttir.“
Í færslu sinni um andlát bestu vinkonu sinnar hét Ramos því að reyna að lifa samkvæmt gildum Rashaun og leggja sitt af mörkum til rannsókna á krabbameini.
„Fyrir Aniku ætla ég að elska án takmarkana, fljúga án ótta, taka fleiri skyndiákvarðanir,“ skrifaði Ramos, „og síðast en ekki síst, láta ekkert stöðva mig í að hjálpa til við að finna lækningu við brjóstakrabbameini.“
