1
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

2
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

3
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

4
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

5
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

6
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

7
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

8
Innlent

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is

9
Innlent

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka

10
Fólk

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna

Til baka

Sendu símann í svefnpoka og fáðu smá frið

Mjúkt net
Lítur út fyrir að vera mikið stuð
Mynd: Aðsend

Finnst þér síminn stundum vita aðeins of mikið um þig? Eða að þú sért farinn að þjóna tækninni frekar en hún þér? Þá gæti samverustundin Mjúkt net á Borgarbókasafninu Grófinni verið eitthvað fyrir þig.

Miðvikudaginn 4. nóvember verður sjónum beint að stafrænu lífi okkar, persónuvernd og því hvernig hægt er að ná aðeins meiri stjórn á símanum og gögnunum sem við skiljum eftir okkur á netinu.

Anna Laufey Stefánsdóttir frá Stafrænni velferð verður á staðnum og veitir gestum ráðgjöf um ýmislegt sem tengist símanotkun. Þar má meðal annars nefna persónuverndarstillingar, aðgangsheimildir forrita og leiðir til að gera farsímanotkun öruggari.

Einnig verður kafað ofan í það sem gerist á bak við tjöldin þegar við notum stafræna miðla. Forrit og þjónustur safna ýmsum upplýsingum um hegðun notenda og geta út frá þeim dregið ályktanir um áhugamál, venjur og þarfir. Slíkt getur síðan haft áhrif á það sem birtist okkur á netinu.

Þeir sem vilja ganga enn lengra í að gefa símanum frí geta bókstaflega saumað utan um hann.

Emma Shannon frá hönnunarteyminu Endurtakk verður nefnilega á staðnum og aðstoðar gesti við að sauma eins konar svefnpoka fyrir símann úr Faraday efni. Efnið lokar fyrir símasamband þegar síminn er geymdur inni í pokanum.

Engin reynsla af saumaskap er nauðsynleg og því ættu jafnvel þeir sem hafa aldrei komið nálægt saumavél að geta sent símann í smá stafræna einangrun.

Mjúkt net fer fram á Borgarbókasafninu Grófinni alla miðvikudaga frá klukkan 16 til 18. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dómaradeilan sýður upp úr í Póllandi
Heimur

Dómaradeilan sýður upp úr í Póllandi

Fá borgað fyrir að ganga með vélhunda um San Francisco
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vélhunda um San Francisco

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við
Innlent

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag
Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna
Fólk

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn
Innlent

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn

Menning

Sendu símann í svefnpoka og fáðu smá frið
Menning

Sendu símann í svefnpoka og fáðu smá frið

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna
Menning

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna

Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar
Menning

Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu
Myndband
Menning

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu

Loka auglýsingu