
Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann skrifaði á samfélagsmiðlinum X í gær þar sem hann hvatti Emmanuel Macron Frakklandsforseta til að senda hermenn til Úkraínu og hafa kjarnorkuvopn tilbúin til notkunar.
Í yfirlýsingu sem Heimir Már sendi frá sér rétt í þessu segist hann harma orðalagið, sérstaklega tilvísunina til kjarnorkuvopna.
„Þau orð eiga sér engar málsbætur og hefðu betur verið ósögð,“ segir hann. Hann greinir jafnframt frá því að hann hafi eytt færslunni.
Heimir Már tekur fram að um hafi verið að ræða persónulega færslu sem tengist ekki störfum hans fyrir þingflokk Flokks fólksins og sé ekki í samræmi við stefnu eða gildi flokksins.
Hann segist harma að færslan hafi verið bendluð við flokkinn og biður flokksfélaga sína innilega afsökunar.
Ummælin birtust undir færslu Macrons á X eftir mannskæða árás Rússa á járnbrautarstöð í úkraínsku borginni Dnipro.
Yfirlýsingin í heild sinni:
Að gefnu tilefni
30.10.2026
Vegna umfjöllunar um athugasemd sem ég skrifaði á samfélagsmiðlinn X í gær vil ég biðjast afsökunar á orðalagi mínu, sér í lagi vísun til kjarnorkuvopna. Þau orð eiga sér engar málsbætur og hefðu betur verið ósögð og hef ég nú eytt færslunni.
Ég ítreka að hér var um persónulega færslu af minni hálfu að ræða sem tengist á enganhátt störfum mínum fyrir þingflokk Flokks fólksins og er ekki í neinu samræmi við stefnu eða gildi flokksins. Ég harma að þessi færsla mín hafi verið bendluð við flokkinn og bið félaga mína í Flokki fólksins innilega afsökunar á því.
Heimir Már Pétursson.
