1
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

2
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

3
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

4
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

5
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

6
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

7
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

8
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

9
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

10
Heimur

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote

Til baka

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

Lá tæpan mánuð á gjörgæslu og glímir við alvarlegar afleiðingar slyssins

Héraðsdómur Norðurlands vestra
Héraðsdómur Norðurlands vestra sá um málið
Mynd: Skjáskot/ja.is

Tæplega 18 ára ökumaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórhættulegan glæfraakstur á Siglufjarðarvegi í Skagafirði. Hann ók á allt að 193 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var 90 og missti stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að farþegar slösuðust, einn þeirra mjög alvarlega.

Dómur féll í Héraðsdómi Norðurlands vestra í dag. Atvikið varð að kvöldi 11. apríl 2025. Bifreiðin fór yfir á öfugan vegarhelming, út af veginum og valt þrisvar til fjórum sinnum.

Fjórir voru í bifreiðinni. Einn farþeganna hlaut meðal annars dreifðan heilaskaða, blóð í heilahólfum og lungnamar. Hann lá tæpan mánuð á gjörgæslu og glímir við alvarlegar afleiðingar slyssins. Annar farþegi hlaut meðal annars brot í háls og brjósthrygg.

Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að raunhraði bifreiðarinnar rétt fyrir slysið var á bilinu 180 til 193 kílómetrar á klukkustund. Myndbönd sem tekin voru á Snapchat inni í bifreiðinni sýndu einnig hraðamælinn í um 190 kílómetrum á klukkustund.

Ástand bifreiðarinnar var jafnframt mjög slæmt. Hjólbarðar voru gamlir og morknir, hemlar í afar lélegu ástandi og veruleg tæring var í burðarvirki. Að mati bifvélavirkja hefði bifreiðin ekki átt að vera í umferð.

Dómurinn taldi aksturinn stórhættulegan og vítaverðan. Ökumaðurinn játaði brot sitt og hafði hreint sakavottorð. Fangelsisrefsingin var skilorðsbundin til tveggja ára og var hann sviptur ökuréttindum í tólf mánuði. Þá var honum gert að greiða alvarlega slasaða farþeganum 3,5 milljónir króna í miskabætur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

„Lifa snýst um lífið sem þú lifir í dag og lífið sem þú vilt geta lifað síðar.“
Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni
Heimur

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni

Hildur sökuð um að fara rangt með staðreyndir
Innlent

Hildur sökuð um að fara rangt með staðreyndir

Bandaríkin æfa viðbrögð við kjarnorkustríði
Heimur

Bandaríkin æfa viðbrögð við kjarnorkustríði

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

Leynilegt kínverskt geimfar sést á áður óbirtri gervihnattamynd
Heimur

Leynilegt kínverskt geimfar sést á áður óbirtri gervihnattamynd

Íbúar fengu óboðinn átta kílóa gest við gluggann
Myndband
Heimur

Íbúar fengu óboðinn átta kílóa gest við gluggann

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Sparkaði í dróna og hæfði fyrirsætu beint í andlitið
Myndband
Heimur

Sparkaði í dróna og hæfði fyrirsætu beint í andlitið

Viðurkennir að hafa skotið fólk sem leit út fyrir að vera múslimar
Heimur

Viðurkennir að hafa skotið fólk sem leit út fyrir að vera múslimar

23 störf hverfa hjá Hafnarfjarðarbæ
Pólitík

23 störf hverfa hjá Hafnarfjarðarbæ

Charles Barkley beygði af þegar Ernie Johnson tilkynnti starfslok sín
Myndband
Heimur

Charles Barkley beygði af þegar Ernie Johnson tilkynnti starfslok sín

Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

„Lifa snýst um lífið sem þú lifir í dag og lífið sem þú vilt geta lifað síðar.“
58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

Hildur sökuð um að fara rangt með staðreyndir
Innlent

Hildur sökuð um að fara rangt með staðreyndir

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá
Innlent

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá

Loka auglýsingu