
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, gagnrýna harðlega málflutning Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um uppsagnir og hagræðingaraðgerðir Reykjavíkurborgar. Þau segja fjölmargar staðhæfingar hennar ekki standast skoðun.
Þetta kemur fram í grein þeirra sem birtist í dag á Vísi. Þar fjalla þau meðal annars um þrjár uppsagnarhrinur hjá borginni sem sagðar eru fela í sér niðurlagningu 130 stöðugilda.
Þau benda á að Hildur hafi sagt að hvergi hafi verið bakkað með uppsagnirnar og staðið hafi verið við þær uppsagnir sem stefnt var að. Kári og Sonja segja það ekki rétt og vísa til upplýsinga frá mannauðssviði borgarinnar um að sjö einstaklingum hafi verið boðið starf sitt aftur þótt það hafi ekki verið ráðgert þegar þeim var sagt upp.
Þau gagnrýna einnig markmið borgarinnar um að hlutfall stöðugilda í miðlægri þjónustu verði 7,5 prósent. Segja þau hlutfallið pólitískt viðmið en ekki fræðilegan mælikvarða. Vísa þau meðal annars til norskrar rannsóknar á 300 sveitarfélögum þar sem starfsfólk í stjórnsýslu var að meðaltali 13,3 prósent af heildarfjölda starfsfólks.
Ummæli Hildar um veikindafjarvistir og mögulega misnotkun veikindaréttar sæta einnig harðri gagnrýni. Samkvæmt tölum sem þau vísa til var veikindahlutfall á síðasta ári um 7,3 prósent á Landspítala og í Hafnarfirði, ríflega sjö prósent í Reykjavík og Kópavogi og tæplega 5,9 prósent á Seltjarnarnesi.
„Staðhæfing um að fólk sé að misnota rétt sinn til veikindalauna án nokkurra gagna eða þekkingar sem renna stoðum undir hana er alvarleg,“ skrifa þau.
Þau draga jafnframt í efa að nægilegar greiningar liggi að baki uppsögnunum. Rúmlega hundrað dögum eftir fyrstu uppsagnir hafi borgin ekki svarað helmingi beiðna Sameykis um rökstuðning né afhent greiningar eða gögn um undirbúning þeirra.
Reykjavíkurborg hefur sagt að niðurlagning 130 stöðugilda skili um 2,3 milljarða króna hagræðingu á ársgrundvelli. Kári og Sonja telja óljóst hvort tekið hafi verið tillit til kostnaðar sem geti komið á móti, meðal annars vegna yfirvinnu og útvistunar verkefna.
Þau hafna jafnframt þeirri fullyrðingu að borgarbúar muni ekki finna fyrir breytingunum. Minni stoðþjónusta geti að þeirra mati aukið álag á framlínustarfsfólk, lengt biðtíma og haft áhrif á gæði þjónustunnar.
„Það eru ansi kaldar kveðjur að gera meinta misnotkun á veikindarétti að umræðuefni við þessar aðstæður,“ skrifa Kári og Sonja.
Þau segja Hildi ekki hafa lagt fram gögn sem sýni með skýrum hætti hver áhrif fækkunar starfsfólks verði eða hverjir taki við verkefnum þeirra sem missa störfin.
