
Arion banki hefur höfðað mál gegn 58 ára gömlum manni vegna skuldar sem bankinn segir hafa myndast á yfirdráttarreikningi hans. Stefna málsins var birt í Lögbirtingablaðinu í dag.
Bankinn krefst þess að maðurinn greiði 1.682.928 krónur auk dráttarvaxta frá 8. apríl síðastliðnum og málskostnaðar.
Samkvæmt stefnunni sótti maðurinn um yfirdráttarheimild í netbanka og var heimildin að hámarki 1,6 milljónir króna. Upphaflega átti að endurgreiða skuldina með einni greiðslu 30. desember 2026.
Skuldin fór hins vegar yfir heimildina og segir bankinn að lánssamningnum hafi því verið sagt upp 8. apríl. Þá hafi uppsöfnuð skuld numið tæplega 1,7 milljónum króna.
Bankinn segir innheimtutilraunir ekki hafa borið árangur.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í desember.