
Óvenjuleg sjón blasti við vegfarendum í miðbæ Reykjavíkur í gær þegar DeLorean-bifreið, sem hefur verið útbúin þannig að hún líkist hinni heimsfrægu tímavél úr Back to the Future, sást á ferð um götur borgarinnar.
Bíllinn vakti mikla athygli enda er DeLorean DMC-12 afar sjaldséður hér á landi. Vegfarandi náði ljósmynd af bílnum í miðborginni og mátti á honum sjá ýmsan búnað sem vísar augljóslega til tímavélarinnar úr kvikmyndunum.
Saga DeLorean á Íslandi nær aftur til ársins 1998 þegar DMC-12 af árgerð 1981 var fluttur hingað til lands. Bíllinn var síðar sagður vera sá eini sinnar tegundar á Íslandi.
Stefán Örn Stefánsson eignaðist bílinn árið 2005 en hann hafði lengi verið mikill aðdáandi Back to the Future. Árið 2021 var greint frá því að DeLorean Stefáns væri kominn til sýningar á Samgönguminjasafninu Ystafelli í Þingeyjarsveit.
Ekki hefur tekist að staðfesta hvort bíllinn sem sást í Reykjavík í gær sé sá sami.
DeLorean með Back to the Future útliti hefur þó áður sést í höfuðborginni. Sumarið 2024 birti erlendur ferðamaður ljósmynd á DeLorean-samfélagi á Reddit eftir að hafa komið auga á slíkan bíl í Reykjavík. Hann tók sérstaklega fram að bíllinn virtist vera búinn breytingum í anda kvikmyndanna.
Einn frægasti bíll allra tíma
DeLorean DMC-12 varð heimsfrægur þegar hann var notaður sem tímavél í Back to the Future árið 1985. Þar ferðast Marty McFly, leikinn af Michael J. Fox, aftur til ársins 1955 í tímavél sem vísindamaðurinn Dr. Emmett „Doc“ Brown, leikinn af Christopher Lloyd, smíðaði úr DeLorean.
Til þess að ferðast í gegnum tímann þurfti bíllinn að ná 88 mílna hraða á klukkustund.
Tvær framhaldsmyndir fylgdu og varð DeLorean eitt þekktasta farartæki kvikmyndasögunnar.
