1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

5
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

6
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

7
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

8
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

9
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

10
Innlent

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys

Til baka

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

„Enginn staður lítur út eins og á Íslandi“

Jonathon Klein
Mikil gleði var í ferðinni
Mynd: Skjáskot

Blaðamaðurinn Jonathon Klein hjá miðlinum RideApart fer fögrum orðum um Ísland eftir ævintýraferð um landið á vegum Ducati og Dainese. Klein tók þátt í svokallaðri Expedition Masters Iceland ferð og segir upplifunina hafa haft djúpstæð áhrif á sig.

Klein segir að frá því hann sneri heim hafi hann ítrekað staðið sig að því að horfa út um gluggann og láta hugann reika aftur til Íslands. Landið hafi á sérstakan hátt sest að í huga hans og vakið sterka löngun til frekari ævintýra.

„Enginn staður lítur út eins og á Íslandi. Að minnsta kosti ekki á jörðinni,“ skrifar Klein og bætir við að hann hafi notið hverrar sekúndu ferðarinnar.

Tilefni skrifanna er nýtt myndband frá Expedition Masters ferðinni þar sem Klein og ferðafélagi hans Damian fara yfir upplifunina. Klein segir myndbandið hafa vakið upp sterkar minningar og að hann hafi horft á það ítrekað frá birtingu.

Ferðin stóð yfir í fimm daga og var ekið við krefjandi aðstæður á Ducati DesertX V2 mótorhjólum. Að sögn Klein reyndust hjólin afar vel þrátt fyrir erfiða leið. Hann segir hópinn meðal annars hafa farið fram úr tveimur hópum á sérútbúnum torfæruhjólum sem glímdu við bilanir og sprungin dekk.

Á fimm dögum hafi aðeins komið upp tvö vandamál hjá þeirra hópi. Annars vegar hafi sprungið framdekk og hins vegar losnað útblásturskerfi á einu hjólanna. Klein gerir lítið úr síðarnefnda atvikinu og segir það jafnvel hafa gert hljóðið í hjólinu enn tilkomumeira.

Í skrifum sínum lýsir Klein með sterkum hætti minningunum frá Íslandi. Hann segist enn geta kallað fram tilfinninguna af lausum sandi undir hjólunum, köldu jökulvatninu og gróðrinum sem hann lá á eftir langan dag á ferð.

Áhrifin virðast ekki hafa dofnað eftir heimkomuna.

„Ef einhver myndi biðja mig um að fara aftur akkúrat núna myndi ég grípa dótið mitt og fara í næsta 14 tíma flug,“ skrifar Klein.

Hann gengur svo langt að lýsa því yfir að ferðin hafi breytt líf hans og hvetur aðra sem hafa tíma og fjárhagslegt svigrúm til að prófa slíkt ævintýri.

„Farðu og upplifðu ævintýri lífs þíns. Þú verður ekki fyrir vonbrigðum,“ segir Klein að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dularfullur sívalningur rak á land í Flórída
Heimur

Dularfullur sívalningur rak á land í Flórída

Vegna óvissu um innihald og uppruna hlutarins var ákveðið að kalla til sérfræðinga slökkviliðs
„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote
Heimur

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi
Innlent

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi

Báðir helstu frambjóðendurnir vilja Stór-Ísrael
Heimur

Báðir helstu frambjóðendurnir vilja Stór-Ísrael

Að minnsta kosti 39 látnir í árekstri tveggja háhraðalesta á Spáni
Heimur

Að minnsta kosti 39 látnir í árekstri tveggja háhraðalesta á Spáni

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu
Myndband
Menning

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu

Vírusinn
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Vírusinn

Selja eitt fallegasta parhús landsins
Myndir
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

Ungfrú Moskva ákærð fyrir dreifingu klámefnis
Heimur

Ungfrú Moskva ákærð fyrir dreifingu klámefnis

Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

JYSK svarar ummælum Mörtu Maríu um Jysk-hyllur
Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur
Myndir
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons
Myndband
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

Selja eitt fallegasta parhús landsins
Myndir
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Loka auglýsingu