1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

5
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

6
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

7
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

8
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

9
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

10
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Til baka

María Lilja rekin af Samstöðinni

„Afkomuóttinn orðinn áþreifanlegri en nokkru sinni“

María Lilja Ingveldur Þrastadóttir Kemp
María LiljaMaría Lilja hyggst hefja hlaðvarp á næstunni

María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp segir að ráðningarsambandi hennar við Samstöðina hafi verið rift þegar hún hugðist snúa aftur úr veikindaleyfi. Hún hyggst nú hefja eigið hlaðvarp og biður fólk um fjárstuðning við nýtt upphaf.

María Lilja segir í færslu á Facebook að henni hafi verið sagt upp störfum hjá Samstöðinni þegar hún hugðist snúa aftur úr veikindaleyfi. Hún segir ákvörðunina hafa verið mikið áfall og að hún standi nú frammi fyrir fjárhagslegum erfiðleikum.

„Án þess að fara neitt sérstaklega í saumana á því hér þá var ég rekin af Samstöðinni þegar ég hugðist snúa aftur úr veikindaleyfi. Öllu heldur, ráðningarsambandi mínu var rift, á afar hæpnum grundvelli svo það sé sagt,“ skrifar María Lilja.

Hún segir Blaðamannafélag Íslands og lögmann félagsins hafa stutt sig í málinu og þakkar þeim fyrir stuðninginn.

Að sögn Maríu Lilju hyggst Samstöðin ekki greiða henni lögbundinn uppsagnarfrest og hafi jafnframt hafnað beiðnum hennar um að fá að starfa út frestinn. Hún segir þetta hafa áhrif á rétt sinn til atvinnuleysisbóta og að henni hafi ekki tekist að finna nýja vinnu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

„Ég fæ ekki svo mikið sem viðtal og þá skiptir engu hvaða vinnu ég sæki um,“ skrifar hún.

Hún vísar jafnframt til þess að hún sé umdeild og að yfir höfði hennar hangi alvarleg kæra. Hún segir sig sæta lögreglurannsókn vegna meintra tengsla við hryðjuverkasamtök, mútur og landráð.

„Hver vill ráða umdeilda fertuga konu sem hefur hangandi yfir höfði sér alvarlega kæru, sætir lögreglurannsókn fyrir tengsl við hryðjuverkasamtök, mútur og allskonar landráð.

Fucked. Cancelled,“ skrifar María Lilja og á þá við kæru á hendur henni vegna fjárstuðnings við Palestínumenn en hún fór ásamt fleiri konum til Egyptalands til að greiða fyrir heimkomu Gaza-búa sem höfðu þá þegar fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Þannig tókst þeim að bjarga þó nokkrum fjölskyldum frá hryllingnum á Gaza.

Hefur fundið fyrir auknum fjárhagsáhyggjum

María Lilja segir stöðuna hafa reynst sér erfið, ekki síst þar sem hún sé einstæð móðir á leigumarkaði.

„Sem einstæð móðir á leigumarkaði hef ég svosem lent í ýmsu í gegnum tíðina en viðurkenni að eftir því sem liðið hefur á mánuðinn hefur hnúturinn í maganum stækkað hraðar og afkomuóttinn orðið áþreifanlegri en nokkru sinni,“ skrifar hún.

Hún segist þó ekki ætla að gefast upp. Hvatningarskilaboð frá fólki sem hafi saknað hennar í dagskrárgerð hafi meðal annars orðið til þess að hún ákvað að hefja nýtt verkefni.

„Ég hef ákveðið að svara kallinu og fara af stað með eigið hlaðvarp sem að vonum vex og verður að einhverju stærra.“

María Lilja vonast til að fyrsti þátturinn verði tekinn upp og birtur fyrir lok næstu viku, að því gefnu að allt gangi að óskum.

Biður um fjárstuðning við nýtt upphaf

Í færslunni biður María Lilja fólk sem hefur tök á því að styrkja hana fjárhagslega á meðan hún kemur nýja verkefninu af stað.

„Mér þykir það ekki auðvelt að betla peninga fyrir sjálfa mig en eins og staðan er fyrir þessi mánaðarmót hef ég ekki annarra kosta völ,“ skrifar hún.

Hægt er að styrkja hana í gegnum vefsíðuna Buy Me a Coffee eða með millifærslu á reikning hennar: 2200 26 727727 kt. 0109863039.

María Lilja segir jafnframt að þeir sem hafi áhuga á að ráða hana til starfa geti haft samband við sig.

Hún lýkur færslunni á þakklæti til þeirra sem hafa sýnt henni stuðning og hvatningu undanfarið.

„Áfram veginn og þúsund sinnum takk!“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Dómurinn taldi skýringar hans verulega ótrúverðugar
Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu
Heimur

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

„Afkomuóttinn orðinn áþreifanlegri en nokkru sinni“
„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Loka auglýsingu