
Óprúttnir aðilar hafa í fjórgang brotist inn í pylsuvagn Bæjarins Beztu við BYKO í Kópavogi undanfarið án þess að hafa mikið upp úr krafsinsu. Skemmdirnar eru metnar á yfir milljón króna.
Starfsmenn pylsuvagns Bæjarins Beztu við BYKO hafa brugðið á það ráð að hengja upp miða á vagninn með skilaboðum til þjófa. Skilaboðin eru bæði á íslensku og ensku en í þeim stendur eftirfarandi texti:
„Elsku þjófur! Það eru engir peningar geymdir hér yfir nótt. Við tókum þá alla með okkur. Vinsamlegast sparaðu okkur báðum ómakið og láttu húsið vera.“
Mannlíf ræddi við Baldur Inga Halldórsson, eiganda og framkvæmdastjóra Bæjarins Beztu, og spurði hann út í innbrotin. Samkvæmt Baldri hefur fjórum sinnum verið brotist inn í vagninn undanfarið.
„Það er búið að vera leiðinlega mikið um þetta, þetta árið hjá BYKO. Það er fjórum sinnum búið að brjótast inn hjá okkur og skemma vagninn mikið. Og ekki haft mikið upp úr krafsinu svo sem.“
Aðspurður um upphæð tjónsins segir Baldur upphæða fara yfir milljón króna.
„Smiðurinn er mjög ánægður segir hann, af því að hann hefur fengið svo mikla vinnu út á þetta. Ætli þetta hlaupi ekki á yfir einni milljón króna.“
Baldur Ingi segir að enginn hafi náðst við innbrotin en að á myndum sem hafa verið skoðaðar megi sjá hettuklædda menn að verki, þannig að það er ekki hægt að bera kennsl á þá.
„Þetta gerist á nóttunni og á myndum sést að þetta eru bara hettuklæddir menn og þeir hafa nánast ekkert upp úr krafsinu. Ég held að það sé um 40.000 í heildina sem þeir hafa náð af peningum og meirihlutinn í klinki.“
En hefur verið brotist inn í vagninn frá því að miðinn var hengdur upp?
„Já, það hefur gerst einu sinni eftir að miðinn kom upp,“ svaraði Björn Ingi að lokum.
