1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

6
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

7
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

8
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

9
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

10
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

Til baka

Svanur Már Snorrason

Svanur Már Snorrason 2

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Svanur Már Snorrason
Svanur Már Snorrason
Mynd: Golli.

Enn á ný lætur Útlendingastofnun til skarar skríða og góðmennskan og kærleikurinn úr þeim ranni er eins og áður nánast ótæmandi brunnur réttlætis, réttsýni, fjölbreytileika og almennar manngæsku.

Takk, Útlendingastofnun, fyrir að vernda Ísland fyrir fjölfötluðu barni með klofinn hrygg og vatnshöfuð. Sómi Íslands, sverð og skjöldur.

Já, enn á ný koma tíðindi frá Útlendingastofnun sem fá mann til að trúa æ minna á lífið en öllu meira á illskuna og tilgangsleysið sem henni verður alltaf samferða.

Nú á að vísa úr landi tæplega þrítugri konu frá Venesúela og tveimur börnum hennar, þrettán ára unglingsdóttur og fimm ára gömlum syni hennar, sem er fjölfatlaður og mjög alvarlega veikur.

Eða eins og segir í frétt RÚV:

„Rúmlega þrítugri konu frá Venesúela, Leidy Díaz, hefur verið vísað frá landinu ásamt börnum sínum tveimur. Leidy Díaz á dótturina Rachell, 13 ára, og soninn Elian sem er fimm ára. Elian er fjölfatlaður, með klofinn hrygg, vatnshöfuð, og notar hjólastól. Þeim er gert að sæta endurkomubanni til Íslands.“

Af hverju er þessi hryllingur látinn viðgangast, spyr ég í fáfræði minni. Hvers vegna er verið að fremja þetta illvirki hér á þessu friðsama landi þar sem allt er til alls nema jafnvægi í veðráttunni.

Við þessu illvirki er ekkert rökrænt svar; kerfið er fyrir löngu orðið lifandi afl sem hafnar og hlær og hendir fólki út. Enginn ber ábyrgð því enginn er raunverulega vondur heldur bara kerfið, lögin og allt það stöff, þið vitið.

En það er fólk á bak við þessar ákvarðanir og það fólk er fært í því að koma sér undan ábyrgð því það er bara að vinna vinnuna sína. Það tekur enginn ábyrgð því til þess að bæta bölið er vænlegt að benda í aðra átt. Og það virkar alltaf á Íslandi.

Hins vegar er málið í raun og veru einfalt: Það snýst ekki um heimsmálin, það snýst ekki um Trump og Pútín, ekki heldur um stýrivexti, verðbólgu né vindmyllur: Málið snýst um eitt og ekkert annað, mannkærleika!

Og haldi einhver að mannkærleika sé að finna hjá Útlendingastofnun þá ætla ég að vísa aftur í frétt RÚV um málið, en þar segir á einum stað:

Í greinargerð Jóns [Sigurðssonar, lögmanns Leidy Diaz, innskot höfundar]frá því í fyrra kom fram að Útlendingastofnun tæki ekkert tillit til fötlunar drengsins í niðurstöðu sinni. Orðrétt stóð: „Ekki er að finna svo mikið sem einn bókstaf af umfjöllun í hinum kærðu ákvörðunum um stöðu hans sem fatlaðs einstaklings. Enga tilvísun er að finna til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, þrátt fyrir að umræddur samningur hafi verið fullgiltur hér á landi og að til standi að lögfesta hann. Þetta er grundvallaratriði sem er nauðsynlegt að taka tillit til í sambandi við allar kröfur og málsástæður kæranda og er um að ræða gríðarlega alvarlegan galla á málsmeðferð og ákvörðunum Útlendingastofnunar.“

Þetta mál og niðurstaða þess er hneysa fyrir allt sem gott og eðlilegt getur talist hér á landi; hér er ætlunin að keyra í gegnum kerfið af fullri hörku brottrekstri lítillar fjölskyldu þar sem yngsti meðlimurinn býr við ofboðslega skert lífsgæði.

Er þetta ekki illska?

Til að reyna að koma skikki á þessi hryllilegu vinnubrögð Útlendingastofnunar þá biðla ég hreinlega til manneskju sem ég ber mikla virðingu fyrir og hef mikla trú á. Hún heitir Kristrún Frostadóttir og er forsætisráðherra okkar Íslendinga. Hún hefur staðið sig með miklum sóma sem forsætisráðherra. Ég biðla líka til hennar af þeirri ástæðu að hún er valdamesta manneskja Íslands.

Því ætla ég í lok þessarar fátæklegu greinar að biðja þig, Kristrún Frostadóttir, að gera eitthvað í þessum málum sem koma reglulega upp hjá Útlendingastofnun: Komdu skikki á þessa stofnun og færðu henni mögulega smá mannkærleika, því ekki veitir af. Hættum að henda fötluðu fólki úr landi.

Nú er komið að þér, Kristrún!

Höfundur er rithöfundur og bókmenntafræðingur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

„Sú ákvörðun er hjá framkvæmdastjórn ESB sem hefur ekki beitt þeirri heimild gegn Ísrael“
Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum
Heimur

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu
Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Dóttir Noels Gallagher flutt á sjúkrahús í andnauð
Myndband
Heimur

Dóttir Noels Gallagher flutt á sjúkrahús í andnauð

Skoðun

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Barnið og sannleikurinn
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Barnið og sannleikurinn

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?
Skoðun

Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Streita og kulnun
Skoðun

Dávur í Dali

Streita og kulnun

Loka auglýsingu