
Anais Gallagher, 26 ára dóttir tónlistarmannsins Noel Gallagher, var flutt á sjúkrahús eftir að hún átti skyndilega í erfiðleikum með öndun í kjölfar ógnvekjandi reynslu í kvikmyndahúsi í Leicester Square í Lundúnum.
Anais, sem er dóttir Noel og Meg Matthews, greindi frá því í nýlegu myndbandi á YouTube að hún hefði fengið svo alvarlegt kvíðakast að hún væri enn með öndunarerfiðleika um 40 klukkustundum síðar.
Hún var í kvikmyndahúsi að horfa á myndina Verity þegar fimm eða sex lögreglumenn komu inn í salinn með vasaljós. Atvikið hafði mikil áhrif á hana, en hún segist hafa lengi glímt við kvíða í kvikmyndahúsum af ótta við að eitthvað slæmt gæti gerst.
„Ég fékk alvöru kvíðakast. Ég átti mjög erfitt með að ná andanum. Um 40 klukkustundum síðar átti ég enn erfitt með að anda eðlilega,“ sagði hún í myndbandinu.
Anais kvaðst hafa þurft að yfirgefa kvikmyndahúsið þar sem ástandið varð henni ofviða.
„Ég er alltaf hrædd um að einhver hættulegur maður leynist í kvikmyndahúsinu. Þegar lögreglan kom inn til að leita að einhverjum hugsaði ég: Sjáðu, slæmt fólk leitar sér skjóls í kvikmyndahúsum,“ sagði hún.
Hún bætti við að atvikið hefði styrkt ótta sinn við að slæmir hlutir gætu gerst hvar sem er.
Öndunarerfiðleikarnir héldu áfram eftir að hún kom heim og ákvað hún því að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi. Þar hlustuðu læknar á hjarta hennar og lungu og tóku röntgenmynd af lungunum.
Anais er ekki ein um að hafa glímt við kvíðaköst. Faðir hennar, Noel Gallagher, hefur einnig sagt opinberlega frá slíkri reynslu og áhyggjum sínum þegar frægð hans jókst.
Noel hefur áður greint frá því að hann hafi neytt kókaíns á hverju kvöldi í fjögur ár og að neyslan hafi valdið honum alvarlegum kvíðaköstum.
Í hlaðvarpinu Funny How? hjá Matt Morgan sagði hann að hann hefði einu sinni þurft að leggjast inn á sjúkrahús vegna ástands síns.
„Ég fékk nokkur hræðileg kvíðaköst og þess vegna hætti ég,“ sagði Noel.
