1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

5
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

6
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

7
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

8
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

9
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

10
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

Til baka

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna

Hugmyndin kviknaði af eigin reynslu Kristínar Guðmundsdóttur

Kristín Guðmundsdóttir
Kristín GuðmundsdóttirKristín safnar nú fyrir stofnun Ýtar.
Mynd: Aðsend

Nýtt bókaforlag, Ýtar, er í undirbúningi með það að markmiði að gefa út vandaðar skáldsögur og léttlestrarbækur á íslensku fyrir fólk af erlendum uppruna, auk skáldverka fyrir almennan markað. Söfnun á Karolina Fund á að fjármagna stofnun forlagsins og fyrstu útgáfu þess.

Markmiðið með Ýtum er að gera fólki á öllum aldri og á mismunandi stigum íslenskunáms kleift að njóta alvöru skáldskapar á íslensku. Jafnframt verður lögð áhersla á útgáfu grípandi skáldsagna fyrir almennan markað.

Nafnið Ýtar er fornt íslenskt orð yfir fólk og er einkum notað í skáldamáli. Aðstandandi forlagsins segir nafnið endurspegla hugmyndina um að færa fólki sögur sem opna nýja heima, efla lestraráhuga og brúa bil milli fólks.

Bækur fyrir ólíka lesendur

Meðal verkefna forlagsins er útgáfa skáldsögunnar Frá norðri til nýrra heima. Hún segir frá viðskiptajöfri sem missir vinnuna í janúar og heldur til Skotlands á snekkju sinni. Þegar hann verður vitni að því að vinur hans er myrtur tekur ferðin óvænta stefnu og leiðir hann í heimsreisu um fimm heimsálfur. Á leiðinni bíða hans hættuleg ævintýri, ást og persónuleg umbreyting.

Einnig er stefnt að útgáfu bókarinnar Hvað leynist í kistlinum, sem er ætluð fólki sem er komið á þriðja stig í íslenskunámi. Hún hefur að geyma 12 stuttar og sjálfstæðar sögur sem eiga að gera lesturinn aðgengilegan og skemmtilegan. Bókin er nú í lokaprófarkalestri og unnið er að kápuhönnun.

Þá eru aðeins um 90–100 eintök eftir af Handan dalanna, annarri léttlestrarbók sem hefur selst vel. Hún inniheldur einnig 12 sjálfstæðar sögur úr ólíkum áttum.

Hugmyndin kviknaði af eigin reynslu

Aðstandandi forlagsins, Kristín Guðmundsdóttir er menntaður matartæknir og starfaði við fagið í nokkur ár. Þar tók hún eftir því að fólk af erlendum uppruna átti erfitt með að finna íslenskt lesefni við hæfi. Bækurnar sem stóðu til boða voru oft ætlaðar börnum eða skrifaðar á flóknu og gamaldags máli.

Árið 2014 hóf hún því að þróa hugmyndir að léttlestrarbókum fyrir þennan hóp. Fyrsta bókin, Nýjar slóðir, kom út á árunum 2019–2020 og gekk vel. Síðan hefur hann gefið út eina bók á ári og byggt upp fastan hóp lesenda og viðskiptavina bæði hérlendis og erlendis.

Bækurnar fjalla um fjölbreytt efni, allt frá íslenskri sögu og menningu til ævintýra og sagna þar sem dýr og hlutir fá sjálfstætt líf. Að ósk lesenda eru flókin orð og orðasambönd einnig útskýrð í flestum bókunum.

Kristín þekkir sjálf hvernig það er að læra nýtt tungumál í öðru landi og segir þá reynslu hafa haft áhrif á hugmyndina. Kennarar hafi jafnframt bent á þörfina fyrir bækur af þessu tagi.

Söfnun á Karolina Fund

Söfnun á Karolina Fund er ætlað að gera kleift að stofna Ýtar bókaforlag formlega. Fjármunirnir munu meðal annars fara í skráningu fyrirtækisins, vörumerkjavernd, faglega kápuhönnun, prentun skáldsögunnar Frá norðri til nýrra heima og gerð vefsíðu.

Jafnframt er stefnt að opnunar- og útgáfuhófi fyrir stuðningsfólk verkefnisins.

Markmiðið til framtíðar er að byggja upp fjölbreyttan útgáfuflokk fyrir fólk af erlendum uppruna á öllum aldri og öllum stigum íslenskunáms, um leið og skáldsögur fyrir almennan markað fá sinn sess.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Stærsta bókaverslanakeðja Rússlands hefur eytt bókum fyrir 100 milljónir rúblna
Heimur

Stærsta bókaverslanakeðja Rússlands hefur eytt bókum fyrir 100 milljónir rúblna

„Við getum ekki bara hent þessum bókum í ruslið. Þetta er eitraður úrgangur“
Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027
Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig
Heimur

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur
Innlent

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur

„Barnið mitt er ekki í geymslu“
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

Farþegar teknir úr flugvél eftir sprengjuhótun á Kanarí
Heimur

Farþegar teknir úr flugvél eftir sprengjuhótun á Kanarí

Lögreglan dulbjó sig sem risastóra umferðarkeilu
Heimur

Lögreglan dulbjó sig sem risastóra umferðarkeilu

Dularfullur sívalningur rak á land í Flórída
Heimur

Dularfullur sívalningur rak á land í Flórída

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote
Heimur

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi
Innlent

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi

Menning

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu
Myndband
Menning

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu

„Þetta var bæði erfiðasta tónlistarmyndband sem ég hef gert og það skemmtilegasta“
„Maður verður bara að halda áfram og fara sína eigin leið“
Myndband
Menning

„Maður verður bara að halda áfram og fara sína eigin leið“

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna
Menning

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna

Fjöll gefur út nýtt lag af væntanlegri plötu
Menning

Fjöll gefur út nýtt lag af væntanlegri plötu

Góð bók gæti gert meira fyrir þig en þú heldur
Menning

Góð bók gæti gert meira fyrir þig en þú heldur

Loka auglýsingu