
Lífland ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Kanilsnúðaköku frá Kornax.
Ástæða innköllunar
Aðskotahlutur (plaststykki) fannst í kanilsykurpoka sem fylgir með kökublöndunni.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við
Vörumerki: Kornax
Vöruheiti: Kanilsnúðakaka
Nettómagn: 475g
Strikamerki: 5690453977919
Best fyrir dagsetning: 18.08.2026 og 10.11.2026
Lotunúmer: 15012534403 og 15012546102
Framleiðandi: Valsemøllen A/S, Esbjerg, Danmörku fyrir Lífland ehf.
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru
Lífland ehf., Brúarvogur 1-3, 104 Reykjavík.
Dreifing (verslanir)
Krónan, Bónus, Hagkaup, Stórkaup, Fjarðarkaup, IKEA, Kaupfélag vestur Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga, Hlíðarkaup, Melabúðin, Verslun Einars Ólafssonar, Hraðbúðin Hellissandi, Víkurval og Verslunin Fjölval.
Leiðbeiningar til neytenda
Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni. Einnig er hægt að fá nýja vöru í verslun Líflands á Korputorgi í Reykjavík.
