
Fertugur Reykvíkingur hefur verið dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir sex þjófnaðarbrot og fíkniefnalagabrot. Meðal þess sem maðurinn stal voru reiðhjól, fartölvur, verkfæri, lambakjöt, sælgæti og mikið magn áfengis.
Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur 22. október en maðurinn játaði brot sín skýlaust. Brotin voru framin frá apríl 2025 til febrúar á þessu ári.
Fyrsta brotið var framið 7. apríl 2025 þegar maðurinn fór inn í stigagang fjölbýlishúss í Reykjavík og stal rauðu Cannondale-reiðhjóli. Í ágúst sama ár fór hann ásamt öðrum manni inn um þakglugga snyrtistofu í Reykjavík og stal þar 6.500 krónum í reiðufé, Apple-fartölvu, öryggiskassa og snyrtivörum.
Í október stal hann síðan sælgæti að verðmæti 1.435 krónur úr verslun Krónunnar.
Stálu miklu magni áfengis úr skipi
Um miðjan október 2025 fór fertugi Reykvíkingurinn ásamt öðrum aðila inn í skip í Reykjavík. Þar stálu þeir miklu magni áfengis ásamt fatnaði og tölvu.
Áfengið sem tekið var var fjórar eins lítra flöskur af Jack Daniels, tvær eins lítra flöskur af Jagermeister, fjórar eins lítra flöskur af Finlandia, fimm eins lítra flöskur af Beefeater, fjórar 750 millilítra flöskur af Boutinot-hvítvíni, ein 700 millilítra flaska og tvær eins lítra flöskur af Bombay-gini, tíu eins lítra flöskur af Captain Morgan Spiced, níu 700 millilítra flöskur og tuttugu 250 millilítra flöskur af Jökla-rómalíkjör, sjö eins lítra flöskur af Jameson og ein 750 millilítra flaska af Campo Viejo Rioja Tempranillo-rauðvíni.
Einnig var stolið Patagonia-bakpoka, Patagonia-peysu og Lenovo ThinkPad-fartölvu. Heildarverðmæti þýfisins úr skipinu var 699.051 króna.
Skömmu síðar fann lögregla 1,58 grömm af amfetamíni á manninum við öryggisleit á lögreglustöðinni við Hverfisgötu.
Hafði nýlega lokið meðferð
Í nóvember 2025 stal maðurinn verkfærakassa úr geymslu fjölbýlishúss og í febrúar á þessu ári stal hann lambaframhrygg að verðmæti 3.494 krónur úr Nettó.
Maðurinn á sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 2002 og hefur áður verið dæmdur meðal annars fyrir þjófnaði, fjársvik og fíkniefnalagabrot. Við ákvörðun refsingar leit dómurinn þó til þess að hann játaði brotin skýlaust. Þá kom fram hjá verjanda hans að maðurinn hefði nýlega lokið meðferð og snúið lífi sínu til betri vegar.
Dómurinn taldi sakaferil hans hins vegar standa því í vegi að refsingin yrði skilorðsbundin. Hann var því dæmdur í fimm mánaða fangelsi.