1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

5
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

6
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

7
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

8
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

9
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

10
Innlent

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys

Til baka

Ragnar Erling Hermannsson

Vírusinn

Raggi Turner
Ragnar Erling Hermannsson
Mynd: Aðsend

Í gærkvöldi fengum við að bera Vírusinn augum í enn einni framúrskarandi samfélags þjónustu Kveiks og óbilandi viðleitni þeirra að varpa ljósi á dimmustu hliðar samfélagsins  ...

.. takk enn og aftur Kveikur.

Vírusinn sem ég tala um er sjúkdómur ..  hugsunarháttur,  ástand sem verður til þegar við hættum að spyrja hvað barn og fjölskylda þess þurfi og förum þess í stað að spyrja hver geti tekið barnið að sér.

Byrjum á móðurinni.

Móður sem leitar sér hjálpar vegna þess að barnið hennar þarf meiri stuðning en fjölskyldan fær. Móður sem er þreytt. Kannski örmagna. Móður sem hefur þurft að banka aftur og aftur á dyr samfélags sem segist ætla að grípa börn og fjölskyldur þegar á reynir.

Svo gerist eitthvað.

Beiðnin um hjálp breytist.

Smám saman færist athyglin frá því sem samfélagið getur gert fyrir móðurina og barnið hennar yfir á það sem móðirin getur ekki gert.

Og ein setning tekur að móta veruleikann:

Þú ræður ekki við barnið þitt.

Hugsum aðeins um þessa setningu.

Hvað þarf að ganga á áður en móðir trúir því að hún ráði ekki við eigið barn?

Hversu oft þarf að segja henni að vandinn sé of stór, hegðunin of erfið, þarfirnar of miklar? Hversu oft þarf hún að upplifa sig eina áður en hún hættir að spyrja: Af hverju hjálpar enginn okkur? Og byrjar þess í stað að spyrja:

Hvað er að mér?

Og þarna verður Vírusinn sýnilegur.

Því það er grundvallarmunur á móður sem ræður ekki við barnið sitt og móður sem hefur ekki fengið þann stuðning sem þarf til að ráða við óvenju krefjandi aðstæður barnsins síns.

Fyrri setningin staðsetur vandann hjá móðurinni.

Sú síðari staðsetur ábyrgðina hjá okkur.

Hjá samfélaginu.

Og það breytir öllu.

Því þegar móðir hefur verið sannfærð um að hún ráði ekki við barnið sitt verður miklu auðveldara að sannfæra hana um næsta skref: Að einhver annar verði að taka við.

Þarna vil ég stoppa.

Áður en við tölum um einkarekin úrræði. Áður en við tölum um reikninga og milljarða. Áður en við spyrjum hver fékk greitt hvað.

Hvað gerðum við til þess að halda móður og barni saman áður en við sannfærðum móðurina um að hún réði ekki við barnið sitt?

Kannski er það spurningin sem hefði átt að koma fyrst.

Því barn sem þarf hjálp er ekki vandamál sem þarf að fjarlægja.

Og móðir sem biður um hjálp hefur ekki játað sig sigraða.

Hún hefur kallað eftir því að samfélagið standi með henni.

Ef svar okkar við því ákalli er að sannfæra hana um að hún ráði ekki við eigið barn, þá er kominn tími til að hætta að spyrja hvað sé að móðurinni.

Við þurfum að spyrja hvað sé að okkur.

Hvaða samfélag byggir upp kerfi þar sem hjálpin við móður getur endað á því að taka móðurhlutverkið úr höndum hennar, í stað þess að styrkja hana til að halda utan um barnið sitt?

Og áður en við teljum milljarðana verðum við að telja það sem ekki verður metið til fjár:

traustið sem brotnaði,

tengslin sem rofnuðu,

og börnin sem lærðu að lausn fullorðna fólksins væri að þau færu.

Það er Vírusinn.

Og hann býr ekki í börnunum.

Hann býr í kerfinu sem sannfærir móður um að hún ráði ekki við barnið sitt ! 

Ég vona að við þurfum aldrei að sjá ykkur mæður aftur á opinberum vettvangi segja við sjálfar ykkur og okkur að ÞIÐ RÁÐIÐ EKKI VIÐ EIGIN BÖRN ! .. en nú verður þetta að brenna til grunna fallega fólk. Eina sem þarf nú er að taka vald ykkar til baka mæður frá þessu kerfi. .. og ef þið þurfið að öskra sem ljónynjur ... Það er komið leyfi .. kæru konur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi
Innlent

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi

Báðir helstu frambjóðendurnir vilja Stór-Ísrael
Heimur

Báðir helstu frambjóðendurnir vilja Stór-Ísrael

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons
Myndband
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

Að minnsta kosti 39 látnir í árekstri tveggja háhraðalesta á Spáni
Heimur

Að minnsta kosti 39 látnir í árekstri tveggja háhraðalesta á Spáni

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu
Myndband
Menning

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu

Selja eitt fallegasta parhús landsins
Myndir
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

Ungfrú Moskva ákærð fyrir dreifingu klámefnis
Heimur

Ungfrú Moskva ákærð fyrir dreifingu klámefnis

Kötturinn Sigurlaug lét níu lífin reyna á sig
Innlent

Kötturinn Sigurlaug lét níu lífin reyna á sig

Hildi sagt upp hjá borginni
Ný frétt
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

María Lilja rekin af Samstöðinni
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

Skoðun

Vírusinn
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Vírusinn

Streita og kulnun
Skoðun

Dávur í Dali

Streita og kulnun

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?
Skoðun

Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Loka auglýsingu