
Ummæli Benjamins Netanjahu í kosningabaráttunni í Ísrael endurspegla „djúpa kynþáttafordóma“ í garð Araba í Ísrael. Gadi Eisenkot, helsti keppinautur hans, sé þó „ekki svo ólíkur“ honum. Þetta segir Antony Loewenstein, rannsóknarblaðamaður, rithöfundur og heimildamyndagerðarmaður, í samtali við Al Jazeera.
„Þegar kemur að helstu málunum, Vesturbakkanum, Gaza, Íran og samskiptum við Mið-Austurlönd, er ótrúlega lítill munur á þeim,“ segir hann.
„Ég lít ekki fram hjá þeim hörmungum sem fylgt hafa stjórnarsamstarfi Netanjahus og Itamars Ben-Gvir undanfarin fjögur ár og því sem þeir hafa verið að gera víða um svæðið. En hinn valkosturinn mun ekki hafa miklar breytingar í för með sér. Það gætu orðið yfirborðslegar breytingar á Vesturbakkanum, hugsanlega með handtökum á einhverjum þeirra landtökumanna sem hafa beitt hvað mestu ofbeldi.
En þegar kemur að grundvallarsjónarmiðunum hafa þeir mjög svipaða heimsmynd. Ég myndi kalla hana hugmyndafræði um Stór-Ísrael, og það er mjög hættulegt.“
Hugmyndafræðin um „Stór-Ísrael“ á sér meðal annars stoð í biblíulegum textum þar sem Guð lofar Abraham landi sem teygir sig frá ánni Níl til Efrat. Samkvæmt víðtækustu túlkun hugmyndarinnar myndi þetta landsvæði ná yfir hluta eða jafnvel öll lönd á borð við Egyptaland, Írak, Jórdaníu, Líbanon, Sádi-Arabíu og Sýrland.
Þegar 66 prósent hafa verið talin ná hvorugar fylkingar Netanyahus og Eisenkot meirihluta og gætu þurft að reiða sig á stuðning Arabaflokka til að mynda meirihluta.
