
Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, gagnrýnir harðlega hugmyndir um mögulega sölu Ljósleiðarans og segir fjarskiptainnviði ekki frábrugðna öðrum grunninnviðum samfélagsins.
Hluthafafundur Ljósleiðarans samþykkti í gær að veita umboð til aðgerða sem gætu leitt til breytinga á eignarhaldi félagsins. Ljósleiðarinn er að fullu í eigu Orkuveitunnar og er samþykkt hluthafafundarins háð staðfestingu eigenda Orkuveitunnar.
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, sagði í samtali við Morgunblaðið að hún væri spennt fyrir þeirri vegferð sem nú væri fram undan. Hún sagði lengi hafa verið lögð áhersla á að Ljósleiðarinn yrði seldur þar sem félagið væri ekki hluti af grunnrekstri Orkuveitunnar.
Að mati borgarstjóra liggja töluverð verðmæti í félaginu sem mætti nýta í þágu borgarbúa, meðal annars til niðurgreiðslu skulda eða mikilvægra innviðafjárfestinga.
Björn Leví tekur allt annan pól í hæðina og gagnrýnir hugmyndina harðlega í færslu á Facebook.
„Afsakið, en þetta er hörmuleg hugmyndafræði. Þetta er ekkert öðruvísi en að selja vegakerfið, raforkudreifingu, vatnslagnir og fleira í þeim dúr. Verðmætin í þessum innviðum eru að þurfa ekki að borga undir gróðafíkn fákeppninnar,“ skrifar Björn Leví.
Hann efast jafnframt um að sala félagsins og möguleg niðurgreiðsla skulda skili sér í raun til borgarbúa. Þvert á móti telur hann hættu á að kostnaður þeirra aukist ef grunninnviðir færist í hendur einkaaðila.
Björn Leví spyr meðal annars hvort fyrirhugaðri sölu fylgi loforð um skattalækkanir í samræmi við lægri skuldir og varar við því að borgin nýti aukið fjárhagslegt svigrúm til frekari skuldsetningar.
Hann kallar jafnframt eftir skýrari skilgreiningu á því hvað teljist til grunninnviða og segir hið opinbera bera ábyrgð á að tryggja íbúum öruggan og hagkvæman aðgang að slíkum innviðum.
„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum sem hið opinbera byggði upp,“ skrifar Björn Leví.
