1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Til baka

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Heimapróf hafði gefið jákvæða vísbendingu um myglu

Fjölskylda fólk
Fjölskylda í ReykjavíkMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: BHJ

Kærunefnd húsamála hefur komist að þeirri niðurstöðu að konu hafi verið óheimilt að rifta leigusamningi vegna meintra raka og mygluvandamála í íbúð í Reykjavík. Fyrirtækinu sem leigði henni húsnæðið var þó aðeins heimilað að fá 425.537 krónur greiddar úr ábyrgðartryggingu konunnar, þótt krafa þess hafi numið rúmlega 1,2 milljónum króna.

Úrskurðurinn var kveðinn upp 15. október í máli fyrirtækisins gegn konunni. Aðilar höfðu gert ótímabundinn leigusamning um íbúðina í janúar 2022. Í desember í fyrra tilkynnti konan um riftun og vísaði meðal annars til raka, gruns um myglu og bilana í hitakerfi.

Konan hélt því fram að ástand eignarinnar hefði verið verulega ábótavant um langt skeið og að fyrirtækið hefði ítrekað verið upplýst um vandamálin. Meðal annars hefði komið upp alvarlegur leki í kjallara árið 2023 þegar sjóðheitt vatn fyllti rýmið. Að hennar sögn var aðeins ráðist í bráðabirgðaviðgerð og mikill óþefur hefði verið í húsnæðinu eftir það.

Hún sagði einnig að vond lykt hefði verið úr geymslu á móti barnaherbergi og að rakavandamál hefðu verið á salerni í kjallara. Hitakerfi hússins hefði ítrekað verið í ólagi og sjáanlegar rakaskemmdir hefðu verið á suðurhlið hússins, meðal annars í herbergi dóttur hennar. Dóttirin hefði verið veik og orkulítil og konan sagðist sjálf hafa fundið fyrir vanlíðan. Hún taldi því ekki forsvaranlegt fyrir sig og börn sín að búa áfram í húsinu.

Þegar fjölskyldan flutti úr húsnæðinu kom að sögn konunnar í ljós svört útfelling í geymslu í kjallaranum. Heimapróf hefði jafnframt gefið jákvæða vísbendingu um myglu.

Fyrirtækið hafnaði því að hafa vanrækt viðhald eða að eignin hefði verið haldin göllum. Það benti meðal annars á að konan hefði í september 2025 sagst vilja flytja vegna þess að hún réði ekki lengur við leiguna og hefði möguleika á að kaupa aðra íbúð.

Kærunefndin taldi riftun konunnar ólögmæta. Hún hafði ekki aflað mats heilbrigðisyfirvalda um að húsnæðið væri heilsuspillandi og nefndin taldi ekki sannað að eignin hefði verið haldin svo verulegum annmörkum að heimilt væri að rifta samningnum.

Fyrirtækið krafðist bóta vegna þriggja mánaða en nefndin taldi því hafa borið að takmarka tjón sitt með því að koma íbúðinni aftur í útleigu eins fljótt og mögulegt væri. Konan afhenti lyklana 5. janúar en eignin var ekki auglýst aftur fyrr en í febrúar.

Niðurstaðan varð því sú að fyrirtækinu var heimilað að fá 425.537 krónur úr ábyrgðartryggingu konunnar vegna janúarmánaðar. Öðrum kröfum fyrirtækisins var hafnað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Fuglavernd vill kanna aðrar leiðir en að skjóta álftir vegna tjóns á kornökrum
Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum
Heimur

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu
Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Dóttir Noels Gallagher flutt á sjúkrahús í andnauð
Myndband
Heimur

Dóttir Noels Gallagher flutt á sjúkrahús í andnauð

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg
Innlent

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna
Menning

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna

Fjöll gefur út nýtt lag af væntanlegri plötu
Menning

Fjöll gefur út nýtt lag af væntanlegri plötu

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

Óboðinn og óvenjulegur gestur stökk inn um gluggann
Myndband
Heimur

Óboðinn og óvenjulegur gestur stökk inn um gluggann

Klappstýrur kæra My Chemical Romance
Heimur

Klappstýrur kæra My Chemical Romance

Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Fuglavernd vill kanna aðrar leiðir en að skjóta álftir vegna tjóns á kornökrum
Endaði á sjúkrahúsi eftir slys
Innlent

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg
Innlent

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg

Loka auglýsingu