1
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

2
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

3
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

4
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

5
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

6
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

7
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

8
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Til baka

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

„Af hverju var þetta leyft?“

Álfasteinn
Regína Hrönn við álfasteininnNú blasir aðeins við grátt bílastæði
Mynd: Regína Hrönn - Facebook-skjáskot

Álfasteinn, sem staðið hefur á milli Síðumúla og Ármúla í Reykjavík og tengist gamalli þjóðsögu um álfabyggð og óútskýrða atburði, hefur verið fjarlægður. Regína Hrönn Ragnarsdóttir segir steininn hafa verið horfinn þegar hún ætlaði að heimsækja hann og spyr hvers vegna það hafi verið leyft.

Regína Hrönn Ragnarsdóttir segir frá hvarfi Huldumannssteinsins í Facebook-færslu. Hún hefur undanfarin sex ár reynt að vekja athygli á steininum og stuðla að verndun hans, meðal annars með því að skrifa um sögu hans og raða steinum í kringum hann til að merkja hann sem álfastein.

Þegar hún ætlaði að heimsækja steininn í gær blasti hins vegar við henni tómt bílastæði. Bæði steinninn og gróðurinn í kringum hann voru horfin.

Bílastæði
Mynd: Regína Hrönn - Facebook

„Af hverju var þetta leyft?“ spyr Regína í færslunni.

Saga steinsins nær aftur til fjórða áratugar síðustu aldar

Regína rifjar upp frásögn sagnfræðingsins Árna Óla af Álfasteininum í bókinni Álög og bannhelgi, sem kom út árið 1957 og var prentuð árið 1968.

Samkvæmt frásögn Árna hóf Þorbjörn Jónsson að ryðja grjót af landi í Grensási árið 1934 eða 1935, þar sem hann hugðist stunda hænsnarækt. Einn steinn á lóðinni skar sig úr fyrir stærð sína og lögun. Hann var klofinn þversum og undan honum rann lítil uppsprettulind.

Þegar verkamenn höfðu borað holu í steininn og undirbúið að sprengja hann dreymdi Þorbjörn mann sem sagði honum að steinninn væri heimili sitt og varaði hann við því að hrófla við honum.

Þorbjörn ákvað í kjölfarið að láta steininn standa.

Árið 1940 seldi hann hænsnabúið. Nýir eigendur hugðust síðar fjarlægja steininn, en norski forstöðumaður búsins, Einar Tönsberg, hafði verið varaður við því að eiga við hann.

Eggjaframleiðslan stöðvaðist þegar til stóð að sprengja steininn

Í bók Árna Óla segir að þegar undirbúningur hófst að því að sprengja steininn vorið 1942 hafi eggjaframleiðsla hænsnanna á búinu dregist skyndilega saman og stöðvast síðan alveg um tíma.

Samkvæmt frásögninni var fóðrið rannsakað og dýralæknir skoðaði hænurnar, en ekkert fannst sem skýrði breytinguna. Þegar ákveðið var að hætta við að sprengja steininn tók varpið aftur við sér.

Sagan varð til þess að steinninn var tengdur álagatrú og álfabyggð.

Steininn sprengdur í þrjá hluta

Í Facebook-færslu sinni segir Regína einnig frá því að síðar hafi Haukur og Ólafur, sem ráku Raftækjavinnustofu Hauks og Ólafs við Ármúla 14, byggt á svæðinu ásamt þriðja manni sem átti þann hluta lóðarinnar þar sem steinninn stóð.

Að sögn Regínu ákvað sá maður að sprengja steininn. Það tókst að skipta honum í þrjá hluta og var sá minnsti fjarlægður. Eftir stóðu tveir hlutar steinsins. Þegar reynt var að lyfta þeim með krana hafi kraninn ítrekað næstum oltið og maðurinn að lokum hætt við byggingaráform sín á reitnum.

Regína segir að Haukur og Ólafur hafi síðar gætt þess að ekki yrði hróflað frekar við steininum þegar þeir komust að sögu hans. Þeir færðu steinhlutana tvo eins þétt saman og hægt var.

Nú séu þeir hins vegar horfnir og í staðinn sé komið grátt bílastæði.

Regína lýkur færslu sinni á að harma að steinninn, sem hún segir hafa haft merka sögu, hafi verið fjarlægður og að gróðurinn í kringum hann hafi einnig verið fjarlægður.

„Svo kom bara einhver fyrir nokkrum dögum og tók álfasteinninn og eftir stendur grátt og ljótt bílaplan þar sem áður var álfasteinn með sögu!!“

Hægt er að lesa meira um steinninn á ferðabloggi Regínu en þar má einnig sjá fleiri ljósmyndir af álfasteininum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

„Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi“
Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Klámstjarna kennir samfélagsmiðlum um minnkandi kynhvöt
Heimur

Klámstjarna kennir samfélagsmiðlum um minnkandi kynhvöt

Trump heldur áfram að tala um rassa
Myndband
Heimur

Trump heldur áfram að tala um rassa

Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

„Af hverju var þetta leyft?“
Íhugar að fara í mál við Sigfús
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Loka auglýsingu