
Bandaríska klámstjarnan Alix Lynx telur að samfélagsmiðlar og stefnumótaforrit eigi mun stærri þátt í minnkandi kynlífi ungs fólks en klám. Hún segir stöðuga leit að skjótri umbun og næsta mögulega maka hafa neikvæð áhrif á raunveruleg samskipti og nánd.
Nýleg rannsókn Kinsey-stofnunarinnar bendir til þess að ungt fólk stundi nú minna kynlíf en áður, þrátt fyrir að margir þrái nánd og rómantísk tengsl. Lynx, sem er 37 ára og hefur starfað í klámiðnaðinum frá árinu 2014, telur skýringuna að stórum hluta liggja í breyttri samskiptamenningu.
„Í hreinskilni sagt held ég að klám sé minnsti þátturinn í þessu. Klám hefur alltaf verið til. Ég held að samfélagsmiðlar og stefnumótaforrit séu mun stærri þættir,“ segir Lynx við New York Post.
Endalaust framboð af mögulegum mökum
Að mati Lynx hafa stefnumótaforrit skapað þá tilfinningu að nánast ótakmarkað framboð sé af mögulegum mökum. Notendur geti flett í gegnum fjölda einstaklinga og fengið staðfestingu með skilaboðum og samsvörunum án þess að hitta nokkurn mann í raunheimum.
„Stefnumótaforrit bjóða upp á endalaust framboð af fólki. Þú getur flett og flett, fengið samsvörun eftir samsvörun og það eitt verður að dópamínskammti,“ segir hún.
Þetta geti orðið til þess að fólk einbeiti sér frekar að leitinni sjálfri en að því að byggja upp samband við einstakling sem það hefur þegar kynnst. Fólk verði eins konar pennavinir á netinu áður en athyglin færist yfir á næsta mögulega maka.
Lynx telur sömu þróun eiga sér stað á samfélagsmiðlum. Þar geti notendur auðveldlega fundið einstakling sem þeim þykir aðlaðandi, hafið samskipti og síðan misst áhugann þegar annar vekur athygli þeirra.
Klám ekki alveg saklaust
Þótt Lynx telji klám ekki helstu ástæðu þróunarinnar viðurkennir hún að það geti haft neikvæð áhrif á væntingar fólks til kynlífs.
Hún segir atriði í klámmyndum geta skapað óraunhæfar hugmyndir um það hvernig kynlíf eigi að vera og nefnir eigin reynslu af karlmönnum sem hafi reynt að endurtaka atriði úr myndum hennar.
„Ég hef verið með strákum sem gerðu hluti við mig sem ég veit að þeir sáu í atriðum með mér. Ég hugsaði bara að þetta væri eitthvað sem ég geri þegar ég er að leika, ekki í raunveruleikanum,“ segir Lynx.
Hún leggur áherslu á að klám sé sviðsett afþreying en ekki leiðarvísir að nánd eða kynlífi.
Lynx telur jafnframt að mikil samskipti í gegnum skjái geti dregið úr félagsfærni. Því meira sem fólk venjist því að daðra og kynnast öðrum í gegnum síma, þeim mun erfiðara geti orðið að taka sömu samskipti yfir í raunheiminn.
