1
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

2
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

3
Fólk

Stjarnan á Sólheimum

4
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

5
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

6
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

7
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

8
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

9
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

10
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

Til baka

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Fram undan er mikil vinna, en hér er líka sterkur vilji til að gera gott samfélag enn betra“

Alexandra Jóhannesdóttir
Alexandra JóhannesdóttirBæjarstjórinn er bjartsýnn á framhaldið
Mynd: Facebook

Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, segir fyrstu 75 dagana í starfi hafa verið viðburðaríka og að mörgu leyti öðruvísi en hún hafði gert ráð fyrir. Í færslu á Facebook segir hún að slit meirihlutasamstarfsins í bæjarstjórn hafi verið ákveðin eldskírn, en reynslan hafi ekki dregið úr henni kjarkinn.

Alexandra segir skiljanlegt að breytingar á meirihlutasamstarfi veki spurningar og áhyggjur meðal íbúa, starfsfólks og annarra sem eiga samskipti við sveitarfélagið. Hún leggur þó áherslu á að pólitískar breytingar breyti ekki þeirri ábyrgð bæjarstjóra að tryggja faglega stjórnsýslu, góða þjónustu og eðlilega framvindu verkefna.

Nýr meirihluti hefur nú tekið við og segist Alexandra hlakka til samstarfs við hann og bæjarstjórn alla. Hún telur mikilvægt að skapa grundvöll fyrir málefnalega umræðu, gagnkvæmt traust og farsæla ákvarðanatöku, þrátt fyrir ólíkar skoðanir á áherslum og leiðum.

„Þegar upp er staðið hljótum við öll að stefna að sama marki, sem er að efla Suðurnesjabæ og bæta lífsgæði þeirra sem hér búa,“ skrifar hún.

Á fyrstu vikum sínum í starfi hefur Alexandra kynnst starfsfólki, íbúum og fjölbreyttri starfsemi sveitarfélagsins. Hún segir reynsluna hafa styrkt trú sína á möguleikum bæjarins, þar sem öflugt samfélag, fjölbreytt atvinnulíf og dýrmætur mannauður séu til staðar.

Hún bendir jafnframt á að áskoranirnar séu margar og að áframhaldandi uppbygging kalli á skýra framtíðarsýn og gott samstarf.

Þrátt fyrir erfiða byrjun segist Alexandra vera bjartsýn á framhaldið og telur að sameiginlegt átak geti skilað miklu fyrir Suðurnesjabæ.

„Þó að þessar fyrstu vikur hafi verið ákveðin eldskírn hafa þær ekki dregið úr mér kjarkinn, þvert á móti. Þessi reynsla hefur aukið metnað minn og bjartsýni fyrir hönd Suðurnesjabæjar og styrkt trú mína á því sem við getum áorkað með sameiginlegu átaki á þessu mesta vaxtarsvæði landsins,“ skrifar hún og bætir við:

„Fram undan er mikil vinna, en hér er líka sterkur vilji til að gera gott samfélag enn betra“.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Tuttugu og þriggja ára maður var handtekinn eftir að hafa mætt á tökustað í Brooklyn með stóran slátrarahníf og hótað starfsmanni kvikmyndateymisins.
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Fram undan er mikil vinna, en hér er líka sterkur vilji til að gera gott samfélag enn betra“
Tekið verði fastar á umhverfisníðingum
Pólitík

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

Loka auglýsingu