
Tökur á glæpamyndinni Miami Vice '85, með leikaranum Michael B. Jordan, tóku óvænta stefnu á föstudagskvöld þegar maður er sagður hafa ógnað starfsfólki með stórum hnífi.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í New York til slúðurmiðilsins TMZ truflaði Alex Perez, 23 ára, tökur myndarinnar í Brooklyn um klukkan 23. Hann er sakaður um að hafa dregið fram slátrarahníf og hótað einum starfsmanni kvikmyndatökunnar.
Myndskeið sem TMZ hefur birt sýnir starfsmann fylgja Perez af tökustaðnum. Skömmu síðar tekur hann stóran hníf upp úr vasa á peysu sinni.
Lögreglumaður sem kom á vettvang handtók Perez klukkan 23.17. Að sögn TMZ lét hann einnig falla kynþáttaníðsorð í garð starfsmannsins eftir að hann hafði verið handjárnaður.
Perez hefur áður verið handtekinn fimm sinnum vegna gruns um ýmis brot, þar á meðal tengsl við glæpagengi, líkamsárás með skotvopni og innbrot.
Hann hefur nú verið ákærður fyrir að hafa ógnað öðrum með vopni af annarri gráðu og fyrir ólöglega vörslu vopns af fjórðu gráðu.
