1
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

2
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

3
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

4
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

5
Fólk

Stjarnan á Sólheimum

6
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

7
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

8
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

9
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

10
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Til baka

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Sveinn Rúnar Sigurðsson, læknir og lagahöfundur, segir dauða rúmlega ársgamallar stúlku í rússneskri árás á Kharkív minna á þann hrylling sem úkraínskir borgarar búi við daglega. Hann gagnrýnir jafnframt hörð viðbrögð fjölmargra Íslendinga við fréttum af íslenskum stuðningi við Úkraínu.

Angelina og Inna
MæðgurnarAngelina og Inna létust í árás Rússa
Mynd: Facebook

Í Facebook-færslu fjallar Sveinn Rúnar Sigurðsson um dauða Angelinu, rúmlega ársgamallar stúlku sem lést í drónaárás í borginni Kharkív í Úkraínu 19. október. Móðir hennar, Inna, lést einnig af sárum sínum nokkrum klukkustundum eftir árásina.

Sveinn Rúnar, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa samið fjölmörg lög í söngkeppni Sjónvarpsins, segir mynd af stúlkunni, líflausri í kerru sinni, hafa birst víða um heim og á samfélagsmiðlum.

„Það var íranskur dróni sem grandaði litlu fjölskyldunni og fleiri börnum og foreldrum á leikvellinum í Kharkív Úkraínu,“ skrifar hann. Hann bendir jafnframt á að dróninn hafi verið knúinn kínverskum mótor og íhlutum og skotið á loft af Rússum.

Sveinn Rúnar segir árásina ekki vera einsdæmi heldur hluta af daglegum veruleika almennra borgara í Úkraínu.

„Nákvæmlega svona árásir skipta hundruðum á hverjum einasta degi og eiga sér stað um gervallt landið,“ skrifar hann.

Hann lýsir því hvernig árásirnar beinist að borgaralegum skotmörkum, þar á meðal íbúðarhúsum, sjúkrahúsum, skólum, brúm og lestum. Afleiðingarnar séu meðal annars samanfallin fjölbýlishús, eyðilegging innviða og dauði barna og foreldra.

„Saga Angelinu er ekkert einsdæmi,“ segir Sveinn Rúnar og lýsir jafnframt erfiðum aðstæðum úkraínskra barna sem þurfi að stunda skóla í neðanjarðarbyrgjum.

Gagnrýnir Bandaríkjaforseta

Sveinn Rúnar telur að sérstakar aðstæður hafi gert árásina sem varð Angelinu og móður hennar að bana enn átakanlegri. Hann segir loftvarnaflauturnar ekki hafa hljómað þennan dag.

Hann beinir harðri gagnrýni að forseta Bandaríkjanna og tengir ákvarðanir hans um stuðning við Úkraínu við pólitíska og fjárhagslega hagsmuni. Hann heldur því meðal annars fram að slökkt hafi verið á Starlink-kerfi úkraínska hersins og upplýsingagjöf um yfirvofandi loftárásir stöðvuð.

Þá gagnrýnir hann tilraunir til að draga úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi og heldur því fram að viðskiptahagsmunir tengdasonar forsetans og Steve Witkoff, bandarísks erindreka, hafi áhrif á stefnu Bandaríkjastjórnar í garð Úkraínu.

Sveinn Rúnar tengir einnig stefnu Bandaríkjaforseta í Miðausturlöndum og áhrif hennar á eldsneytisverð við tilraunir hans til að hafa áhrif á þingkosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember.

Hneykslun vegna íslensks stuðnings

Í færslunni vísar Sveinn Rúnar einnig til fréttar á Vísi um að Íslendingar hefðu frá árinu 2022 stutt Úkraínu með vopnakaupum fyrir samtals 20,4 milljarða króna, eða um 150 milljónir evra.

Hann segir viðbrögðin við fréttinni á Facebook hafa verið hörð og að hundruð manna hafi lýst yfir hneykslan sinni í athugasemdum.

Sveinn Rúnar gagnrýnir þessi viðbrögð og segir að reiðin hafi meðal annars beinst að þeim sem minnst mega sín.

Hann ber íslenskan stuðning við Úkraínu saman við stuðning Svía og segir Svía hafa lagt fram fimm- til sexfalt hærri upphæð á hvern íbúa.

Jafnframt bendir hann á að um 1,5 prósent íbúa Íslands séu úkraínskir flóttamenn. Flestir þeirra séu í vinnu og greiði skatta hér á landi.

„Ef íslenskir vinnuveitendur borga þessu fólki lágmarkslaun, er staðreyndin samt sú að Úkraínumenn á Íslandi hafa greitt þessa upphæð í skatta á Íslandi og gott betur,“ skrifar hann.

Hann vísar einnig til reynslu Tékka og segir útreikninga þar í landi hafa sýnt fram á fjárhagslegan ávinning af komu úkraínskra flóttamanna.

„Megi minning Angelinu og Innu lifa“

Í lok færslunnar sendir Sveinn Rúnar Úkraínumönnum kveðju og vonar að þeir finni styrk til að takast á við áframhaldandi stríðsátök og mótlæti.

„Megi Úkraínumenn hvarvetna, vinir og fjölskylda, finna styrk til þess að komast í gegnum þennan hrylling, þrátt fyrir yfirgengilegt mótlætið,“ skrifar hann.

Hann lýkur færslunni með orðunum: „Megi minning Angelinu og Innu lifa í hafsjó látinna Úkraínumanna, sem nú telur hundruð þúsunda.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

Vitni segist hafa séð geimfar og lík geimvera
Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?
Skoðun

Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Sveinn Rúnar Sigurðsson, læknir og lagahöfundur, segir dauða rúmlega ársgamallar stúlku í rússneskri árás á Kharkív minna á þann hrylling sem úkraínskir borgarar búi við daglega. Hann gagnrýnir jafnframt hörð viðbrögð fjölmargra Íslendinga við fréttum af íslenskum stuðningi við Úkraínu.
Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Loka auglýsingu