
Flest okkar upplifa einhvern tíma sorg vegna þess að við höfum misst eitthvað eða einhvern sem skiptir okkur miklu máli. Þegar við hugsum um sorg tengjum við hana gjarnan við dauðsfall ástvinar, en sorg getur líka komið fram við margs konar annan missi. Við getum til dæmis syrgt samband sem hefur endað, heilsu sem við höfum misst, tækifæri sem við fengum ekki eða framtíð sem við höfðum gert okkur vonir um.
Þótt sorg sé hluti af lífi flestra okkar vitum við ekki endilega við hverju við eigum að búast þegar við upplifum hana sjálf. Við bregðumst ekki alltaf við missi eins og við hefðum búist við og stundum skiljum við ekki einu sinni eigin viðbrögð. Viðbrögð annarra geta líka komið okkur á óvart, sérstaklega þegar þau eru ólík því sem við hefðum búist við eða teljum eðlilegt. Þá getum við farið að efast um hvort við sjálf eða aðrir séu að takast á við sorgina á réttan hátt.
Ýmsar mýtur og misskilningur eru til um sorg. Í þessari grein langar mig að skoða nokkrar þeirra, fjalla um hvernig sorg birtist í raun og veru og hvað getur hjálpað okkur að takast á við hana, bæði þegar við syrgjum sjálf og þegar við viljum styðja aðra. Eins og við munum sjá getur skilningur okkar á sorg haft mikil áhrif á það hvernig við upplifum hana.
Að skilja eigin sorgarviðbrögð
Í starfi mínu sem sálfræðingur hef ég séð hvernig missir getur haft áhrif á fólk á margvíslegan hátt, stundum án þess að það átti sig sjálft á því hvers vegna því líður eins og því líður. Svefn getur raskast, einbeiting versnað og tilfinningar vaknað sem fólk á erfitt með að skilja. Stundum er það ekki aðeins missirinn sjálfur sem veldur vanlíðan, heldur líka áhyggjurnar sem fylgja því að skilja ekki eigin viðbrögð.
„Af hverju er ég svona?“ eða „Af hverju get ég ekki bara…“
Þessar spurningar eru skiljanlegar. En þær vekja líka aðra spurningu: Hvaðan koma hugmyndir okkar um hvernig við eigum að bregðast við missi?
Algengar mýtur um sorg
Ein útbreiddasta hugmyndin um sorg er að hún fylgi ákveðnum stigum sem allir þurfi að ganga í gegnum í ákveðinni röð. Margir hafa til dæmis heyrt um fimm stig sorgar: afneitun, reiði, samningaviðræður, þunglyndi og sátt. Þessi hugmynd hefur haft mikil áhrif á það hvernig fólk hugsar um sorg, en rannsóknir styðja ekki að allir gangi í gegnum þessi stig eða að sorg fylgi ákveðinni röð.
Vandinn við slíkar hugmyndir er að þær geta skapað væntingar um hvernig okkur eigi að líða og hvernig við eigum að bregðast við missi. Þegar raunveruleg upplifun okkar er önnur getur það valdið frekari vanlíðan. Einstaklingur sem grætur lítið eftir dauðsfall ástvinar gæti til dæmis farið að hafa áhyggjur af því að eitthvað sé að honum, að honum hafi ekki þótt nægilega vænt um þann sem hann missti eða jafnvel að hann sé vond manneskja.
Þetta er aðeins eitt dæmi af ótal mörgum um hvernig ósamræmi milli væntinga okkar og raunverulegrar upplifunar getur gert sorgina enn erfiðari. Með því að auka skilning fólks á sorg og því hversu ólíkt hún getur birst getum við hjálpað til við að draga úr þeim óþarfa þjáningum sem geta bæst ofan á sorgina sjálfa.
Önnur algeng hugmynd er að sorgin eigi að minnka jafnt og þétt eftir því sem tíminn líður. En sorg fylgir ekki endilega fyrirsjáanlegri þróun. Það er ekki þannig að okkur líði alltaf betur í hverjum mánuði en þeim síðasta. Við getum upplifað mikinn söknuð fyrstu vikurnar, síðan fundið að sorgin færist smám saman meira í bakgrunninn, en nokkrum mánuðum síðar upplifað hana aftur af miklum krafti.
Stundum er ástæðan augljós. Afmæli, hátíðir, ákveðnir staðir eða lag sem við heyrum geta minnt okkur á það sem við misstum. Í öðrum tilvikum kemur sorgin upp án þess að við áttum okkur á því hvers vegna. Þetta þýðir ekki endilega að okkur hafi farið aftur eða að við séum ekki að takast vel á við sorgina.
Það er líka algengur misskilningur að styrkur sorgarinnar endurspegli hversu náið samband okkar var við þann sem við misstum. Við getum upplifað mikla sorg þótt sambandið hafi verið fjarlægt eða jafnvel erfitt. Það er nefnilega ekki aðeins manneskjan sjálf sem við getum syrgt, heldur líka það sem sambandið hefði getað orðið.
Einstaklingur sem átti erfitt samband við foreldri sitt gæti til dæmis upplifað mikla sorg við dauða þess, meðal annars vegna þess að nú er endanlega ljóst að þau munu aldrei fá tækifæri til að bæta sambandið. Vonin um að þau gætu einhvern tíma orðið nánari er horfin. Í slíkum aðstæðum getur sorgin verið flókin og jafnvel fylgt henni tilfinningar sem virðast mótsagnakenndar, svo sem söknuður, reiði, sektarkennd og léttir.
Það er því ekki hægt að álykta út frá því hversu náið samband tveggja einstaklinga var hversu mikil sorgin verður þegar annar þeirra deyr.
Sorg er heldur ekki verkefni með ákveðnum áfangastað. Stundum er talað um sorg eins og hún sé verkefni sem við þurfum að vinna okkur í gegnum. Sú hugmynd getur skapað væntingar um að ef við leggjum okkur nógu mikið fram, hugsum nógu mikið um missinn eða tölum nógu oft um hann, þá munum við að lokum klára sorgarferlið og geta haldið áfram með lífið.
En sorg virkar ekki endilega þannig. Við getum ekki einfaldlega ákveðið að leggja meiri vinnu í sorgina til þess að ljúka henni fyrr. Það getur vissulega verið ýmislegt sem við getum gert til að hjálpa okkur að takast á við ákveðnar tilfinningar eða erfiðleika sem fylgja missi. Það getur til dæmis verið gagnlegt að skoða sektarkennd, áhyggjur eða hvernig við getum aðlagast breyttum aðstæðum. En það er ekki það sama og að vinna sig í gegnum sorgina þar til ekkert er eftir af henni.
Ef við höfum misst einhvern sem okkur þótti mjög vænt um er ólíklegt að við hættum nokkurn tíma alveg að sakna hans. Við hættum ekki að meta það góða sem við áttum með honum og líklega myndum við ekki einu sinni vilja komast á þann stað að okkur þætti það gott að hafa misst hann. Markmiðið er ekki að verða ánægð með missinn, heldur að geta haldið áfram að lifa og fundið gleði þrátt fyrir hann.
Við þurfum ekki að ljúka sorginni til þess að geta haldið áfram með lífið. Og það að við höldum áfram með lífið þýðir ekki að sorginni sé lokið.
Hvernig birtist sorg?
Það sem gerir sorgina erfiða að lýsa er hversu ólík hún getur verið eftir einstaklingum og aðstæðum.
Söknuður og depurð eru líklega þau viðbrögð sem flestir tengja við sorg, en við getum líka upplifað reiði, kvíða, sektarkennd, tómleika eða jafnvel létti. Þessar tilfinningar geta verið til staðar samtímis, þótt þær virðist stangast á.
Einstaklingur sem hefur misst ástvin eftir langvarandi veikindi getur til dæmis fundið fyrir miklum söknuði en um leið létti yfir því að þjáningum viðkomandi sé lokið. Sá sem hefur misst samband getur verið leiður yfir sambandsslitunum en jafnframt fundið fyrir frelsi eða von um betri framtíð.
Við erum líka ólík og það sem við missum hefur mismunandi merkingu fyrir hvert okkar. Jafnvel þegar tveir einstaklingar missa sömu manneskjuna eru þeir ekki endilega að missa það sama.
Ímyndum okkur til dæmis tvö systkini sem missa móður sína. Þau hafa misst sömu manneskjuna, en samband þeirra við hana var ekki endilega eins. Þau eiga ekki nákvæmlega sömu minningarnar, hafa ekki upplifað sömu samskiptin og bera ekki endilega sömu tilfinningar til hennar. Annað þeirra gæti hafa verið mjög náið móður sinni, á meðan samband hins var flóknara eða fjarlægara.
Þau eru líka tveir ólíkir einstaklingar sem bregðast við tilfinningum á mismunandi hátt.
Annað systkinið gæti grátið mikið, viljað tala um móður sína og átt erfitt með að einbeita sér að daglegum verkefnum. Hitt gæti grátið lítið, farið fljótlega aftur að vinna og ekki fundið sömu þörf fyrir að ræða missinn.
Það gæti jafnvel verið systkinið sem átti fjarlægara samband við móður sína sem sýnir meiri sorgarviðbrögð. Kannski syrgir það ekki aðeins móður sína, heldur líka sambandið sem það hefði viljað eiga við hana. Með dauða hennar hefur það misst möguleikann á að þau gætu einhvern tíma orðið nánari. Það gætu líka verið ýmsar aðrar ástæður fyrir því að missirinn reynist því sérstaklega erfiður.
Þetta minnir okkur á að sorgin snýst ekki aðeins um hversu náið sambandið var, heldur líka um hvað missirinn þýðir fyrir einstaklinginn.
Þessi munur getur þó skapað misskilning. Systkinið sem grætur mikið gæti upplifað að hinu standi á sama, á meðan hitt gæti fundið fyrir því að sorgarviðbrögð þess séu ekki talin eðlileg. Þannig geta ólíkar væntingar til sorgarviðbragða orðið til þess að fólk upplifir sig misskilið, jafnvel af sínum nánustu.
Við getum því ekki metið hversu miklu einhver hefur misst eða hversu sárt hann syrgir út frá því hvernig hann sýnir tilfinningar sínar.
Sorg getur einnig haft áhrif á líkamlega og andlega líðan. Svefn getur raskast, einbeiting versnað og verkefni sem áður voru einföld geta orðið erfiðari. Sumir finna fyrir mikilli þreytu, á meðan aðrir upplifa óróleika eða eiga erfitt með að slaka á.
Að syrgja á eigin forsendum
Þegar við upplifum missi getum við fundið fyrir væntingum frá fólkinu í kringum okkur um hvernig við eigum að haga okkur. Við gætum líka haft ákveðnar hugmyndir um það sjálf, byggðar á því sem við höfum heyrt, lesið eða séð hjá öðrum.
Sumir upplifa til dæmis sektarkennd þegar þeir fara aftur að njóta lífsins. Þeir gætu fundið fyrir því að þeir ættu ekki að vera farnir að hlæja, skemmta sér eða gera eitthvað ánægjulegt svo stuttu eftir missinn. Kannski hafa þeir líka áhyggjur af því að aðrir muni túlka það sem merki um að þeim hafi ekki þótt nægilega vænt um þann sem þeir misstu.
En það að upplifa gleði þýðir ekki að við séum hætt að syrgja. Við getum saknað einhvers mjög mikið og samt átt góðar stundir. Við þurfum ekki að halda áfram að líða illa til þess að sýna hversu miklu einhver skipti okkur máli.
Á sama tíma er mikilvægt að gera ekki ráð fyrir því að við vitum hvernig aðrir eigi að sýna sorg sína eða hvað ákveðin hegðun þeirra þýðir.
Ímyndum okkur til dæmis einstakling sem hefur nýlega misst einhvern nákominn en ákveður að fara á tónleika, í ferðalag eða gera eitthvað annað skemmtilegt á degi sem hefur sérstaka merkingu í tengslum við missinn. Utanaðkomandi gæti þótt þetta undarlegt eða jafnvel talið að viðkomandi sýni ekki nægilega mikla sorg. En kannski er þetta einmitt leið hans til að heiðra minningu þess sem hann missti. Kannski hafði sá látni alltaf lagt áherslu á að njóta lífsins og myndi alls ekki vilja að ástvinir hans hættu að gera það eftir dauða hans.
Á sama hátt gæti einhver ákveðið að sleppa ákveðnum viðburði eða gera eitthvað sérstakt til að minnast þess sem hann missti. Slíkar ákvarðanir geta haft persónulega merkingu sem er ekki endilega augljós öðrum.
Flest okkar myndu líklega ekki vilja að fólkið sem okkur þykir vænt um hætti að njóta lífsins eftir að við erum farin. En við höfum líka ólíkar hugmyndir um hvernig við viljum minnast þeirra sem við missum og sýna þeim virðingu.
Það sem skiptir máli er að við fáum svigrúm til að syrgja á okkar eigin forsendum, í samræmi við það sem hefur merkingu fyrir okkur, fremur en að reyna að uppfylla væntingar annarra um hvernig sorgin eigi að líta út.
Það þýðir þó ekki að allar leiðir til að takast á við sorg séu jafn hjálplegar til lengri tíma. Ef við förum til dæmis að forðast allt sem minnir okkur á missinn vegna þess að við óttumst tilfinningarnar sem gætu vaknað, getur það stundum gert okkur erfiðara fyrir. En það er munur á því að velja að gera eitthvað vegna þess að það skiptir okkur máli og því að upplifa að við megum ekki gera það vegna þess að það væri rangt að syrgja á annan hátt.
Hvernig hugsanir okkar geta aukið vanlíðan
Sorgin sjálf getur verið mjög sársaukafull, en stundum bætist við vanlíðan vegna þess hvernig við túlkum, eða hugsum um, eigin viðbrögð.
Ímyndaðu þér að þú hafir misst einhvern sem þér þótti mjög vænt um. Einhvern tíma ferðu að upplifa jákvæðar tilfinningar á ný. Þú hlærð, nýtur samveru með vinum og finnur gleði í hversdagsleikanum. En svo heyrirðu lag sem minnir þig á þann sem þú misstir og skyndilega verður söknuðurinn aftur mjög sterkur.
Þú hafðir haldið að þér væri farið að líða betur. Nú ferðu að velta því fyrir þér hvort þér hafi í raun ekkert farið fram. Kannski hefurðu ekki tekist nægilega vel á við sorgina? Mun þetta aldrei hætta? Mun sorgin alltaf koma aftur af svona miklum krafti?
Þannig getur eðlilegur söknuður orðið uppspretta frekari áhyggna. Það er ekki aðeins erfitt að sakna þess sem við misstum, heldur líka að hafa áhyggjur af því hvað söknuðurinn þýðir.
Við getum líka fundið fyrir sektarkennd vegna þess sem við gerðum eða gerðum ekki meðan viðkomandi var á lífi. Kannski hefðum við viljað heimsækja hann oftar, hringja oftar eða sýna honum meiri áhuga. Þegar við horfum til baka getur verið auðvelt að hugsa um allt sem við hefðum átt að gera öðruvísi.
Stundum óttumst við líka að aðrir muni dæma okkur fyrir þetta. Við gætum því veigrað okkur við að tala um sorgina við fjölskyldu eða vini, einmitt þegar við hefðum hugsanlega gagn af stuðningi þeirra.
Það að sjá eftir einhverju þýðir þó ekki að við þurfum að refsa okkur endalaust fyrir það. Við getum viðurkennt að við hefðum viljað gera ýmislegt öðruvísi, án þess að láta þá eftirsjá ráða því hvernig við lítum á okkur sjálf eða hvort við teljum okkur hafa rétt á að syrgja.
Stundum getur því verið gagnlegt að skoða ekki aðeins tilfinningarnar sem fylgja sorginni, heldur líka þær ályktanir sem við drögum af þeim. Við getum ekki alltaf stjórnað því hvaða tilfinningar vakna, en við getum lært að bregðast við þeim á annan hátt.
Hvað getur hjálpað okkur að takast á við sorg?
Þar sem fólk syrgir á mismunandi hátt er ekki til nein ein uppskrift sem hentar öllum. Það getur því verið mikilvægt að finna sína eigin leið í gegnum þær tilfinningar sem fylgja missinum, í stað þess að reyna að fylgja ákveðnum hugmyndum um hvernig maður eigi að syrgja.
Eitt af því sem getur hjálpað okkur að takast á við sorg er að reyna að skilja betur hvað við erum að upplifa. Það getur verið gagnlegt að skoða hvaða tilfinningar vakna, hvaða hugsanir fylgja þeim og hvaða væntingar við höfum til okkar sjálfra.
Það er mikilvægt að hafa í huga að sorg er eðlilegur hluti af lífinu og langflestir takast á við hana án þess að leita til sálfræðings (þetta er auðvitað ekki gangrýni á þá sem leita til sálfræðings). Við höfum okkar eigin leiðir til að takast á við erfiðar tilfinningar og getum oft sótt mikilvægan stuðning til fjölskyldu, vina og annarra sem standa okkur nærri. Fyrir flesta dugar þetta til að finna smám saman leiðir til að lifa með missinum.
Stundum getur sorgin hins vegar verið flóknari viðureignar. Kannski eigum við erfitt með að skilja eigin viðbrögð, finnum fyrir mikilli sektarkennd eða upplifum að ákveðnar hugsanir og væntingar geri okkur erfiðara fyrir. Þá getur verið gagnlegt að ræða upplifunina við sálfræðing, ekki vegna þess að sorgin sé óeðlileg eða að við séum að takast á við hana á rangan hátt, heldur til að öðlast betri skilning á því sem við erum að upplifa og finna leiðir til að takast á við þá erfiðleika sem fylgja missinum.
Í samtölum við skjólstæðinga reyni ég meðal annars að átta mig á því hvað þeir hafa misst og hvaða merkingu missirinn hefur fyrir þá. Sumir gætu talið að hægt sé að svara spurningunni „Hvað eða hvern hefur þú misst?“ með einu orði. En það eina orð segir okkur lítið um hvað það þýðir fyrir viðkomandi að upplifa þennan missi á þessum tiltekna tímapunkti í lífi sínu.
Tökum sem dæmi einstakling sem hefur misst vinnuna. Kannski var þetta starf sem hann hafði lengi dreymt um og sá fyrir sér að þróast áfram í. Kannski hafði hann lagt mikinn tíma, peninga og fyrirhöfn í að komast þangað sem hann var. Hugsanlega var starfið mikilvægur hluti af sjálfsmynd hans eða vinnustaðurinn samfélag þar sem hann átti vini og fann fyrir því að hann tilheyrði einhverju.
En missirinn getur líka haft allt aðra merkingu. Kannski túlkar einstaklingurinn atvinnumissinn sem merki um að hann sé ekki nógu hæfileikaríkur eða hafi brugðist á einhvern hátt. Kannski hefur hann misst vinnuna nokkrum sinnum áður og óttast nú að honum muni aldrei takast að halda starfi. Eða kannski hefur hann aldrei áður misst vinnuna, en hefur óttast það alla ævi vegna þess að foreldri hans missti vinnuna þegar hann var barn, með alvarlegum afleiðingum fyrir fjölskylduna.
Þetta eru aðeins nokkur dæmi um hversu ólíka merkingu sami atburður getur haft fyrir mismunandi einstaklinga. Að missa vinnuna er ekki endilega bara að missa vinnuna. Það getur líka þýtt að missa framtíðaráform, félagsleg tengsl, sjálfsmynd eða öryggistilfinningu. Og það sem við teljum að missirinn segi um okkur sjálf og framtíð okkar getur haft mikil áhrif á hvernig okkur líður.
Þessi líðan getur síðan haft áhrif á það sem við teljum okkur fær um að gera næst. Einstaklingur sem upplifir atvinnumissinn sem tímabundið áfall gæti til dæmis treyst sér til að byrja fljótlega að leita að nýju starfi, á meðan sá sem túlkar hann sem sönnun þess að honum muni aldrei takast neitt gæti misst trúna á eigin getu og átt erfitt með að taka næstu skref.
Þegar við reynum að skilja sorg er því ekki nóg að vita hvað einstaklingur hefur misst. Það er gagnlegt að reyna að skilja hvað missirinn þýðir fyrir hann, í ljósi reynslu hans og aðstæðna.
Stundum getur verið erfitt að átta sig á þessu upp á eigin spýtur. Þá getur hjálpað að ræða upplifunina við einhvern sem við treystum, eða við sálfræðing. Í slíkum samtölum getur komið í ljós að ákveðnar hugsanir, sjálfsásakanir eða væntingar séu að gera sorgina enn erfiðari en hún þarf að vera.
Markmiðið er ekki að losna við sorgina eða hætta að sakna þess sem við misstum, heldur að skilja betur eigin viðbrögð og finna leiðir til að takast á við þau án þess að bæta „óþarfa“ vanlíðan ofan á missinn sjálfan.
Það getur líka verið gagnlegt að leyfa sér að upplifa þær tilfinningar sem koma upp án þess að dæma sig fyrir þær. Ef við finnum fyrir söknuði þurfum við ekki að líta á hann sem vandamál sem verður að leysa. Ef við upplifum gleði þurfum við ekki að fá samviskubit yfir því. Og ef við grátum lítið þurfum við ekki að hafa áhyggjur af því að við séum ekki að syrgja nægilega mikið.
Það getur líka verið hjálplegt að gefa sér leyfi til að hugsa um eitthvað annað en missinn. Við þurfum ekki að vera stöðugt að velta sorginni fyrir okkur til þess að takast á við hana. Stundum getur verið gott að rifja upp minningar og tala um það sem við misstum, en á öðrum tímum getur verið jafn mikilvægt að einbeita sér að vinnu, fjölskyldu, vinum eða öðrum þáttum lífsins.
Einnig getur verið mikilvægt að gera raunhæfar kröfur til okkar sjálfra. Sorg getur tekið mikla orku og verkefni sem áður voru einföld geta orðið erfiðari. Stundum þurfum við að hægja á okkur, þiggja aðstoð frá öðrum eða sætta okkur við að við getum ekki sinnt öllu með sama hætti og áður. Það getur þó jafnframt verið gagnlegt að halda í einhverja rútínu og sinna þeim þáttum lífsins sem skipta okkur máli.
Hvernig getum við hjálpað öðrum sem syrgja?
Þegar einhver sem okkur þykir vænt um upplifir missi viljum við gjarnan hjálpa. En stundum vitum við ekki hvað við eigum að segja eða gera.
Ein mikilvægasta leiðin til að veita stuðning er að gera ekki ráð fyrir því að við vitum hvernig viðkomandi eigi að líða. Það sem okkur finnst eðlilegt gæti verið mjög ólíkt því sem hinn einstaklingurinn upplifir.
Við þurfum heldur ekki alltaf að finna réttu orðin eða reyna að láta viðkomandi líða betur. Stundum getur verið nóg að hlusta, sýna áhuga og leyfa manneskjunni að tala um það sem hún vill tala um. Sumir vilja ræða missinn mikið, á meðan aðrir vilja frekar fá félagsskap og hugsa um eitthvað annað um stund.
Það getur líka verið gagnlegt að forðast að setja tímamörk á sorgina eða gefa í skyn að einstaklingurinn ætti að vera kominn lengra. Ummæli eins og „nú verðurðu að fara að halda áfram“ geta verið særandi, jafnvel þótt þau séu sögð af góðum hug.
Við getum einnig hjálpað með því að sýna skilning á því að sorgin getur breyst frá degi til dags. Manneskja sem var í góðu skapi í gær getur verið mjög sorgmædd í dag, án þess að það þýði að henni hafi farið aftur.
Stundum er stuðningurinn líka mjög hagnýtur. Að bjóða fram aðstoð við dagleg verkefni, hafa samband eða bjóða viðkomandi með í eitthvað skemmtilegt getur skipt miklu máli. Mikilvægt er þó að virða það ef manneskjan hefur ekki áhuga eða orku til að þiggja boðið.
Með því að skilja betur hversu fjölbreytt sorg getur verið getum við dregið úr hættunni á að gera óraunhæfar kröfur til þeirra sem syrgja. Við getum líka hjálpað þeim að sjá að tilfinningar þeirra og viðbrögð þurfa ekki að vera eins og þeir höfðu búist við til þess að vera skiljanleg.
Að lifa með sorginni
Ímyndum okkur konu sem missti eiginmann sinn fyrir fimmtán árum. Hún hefur síðan eignast nýjan maka, byggt upp gott líf og er almennt hamingjusöm. En þegar hún hugsar um fyrri eiginmann sinn saknar hún hans enn. Hún vildi enn óska þess að hann hefði ekki dáið.
Það er ekkert mótsagnakennt við þetta.
Við getum verið sátt við lífið eins og það er í dag án þess að vera sátt við allt sem hefur gerst í því.
Við getum ekki alltaf breytt því sem við höfum misst. En með því að skilja sorgina betur, og átta okkur á því hvernig hugsanir okkar og væntingar hafa áhrif á upplifunina, getum við stundum gert okkur auðveldara að lifa með missinum.
Dávur í Dali
Sálfræðingur
www.StofaDavs.com