
Skólamálanefnd Skólastjórafélags Íslands gagnrýnir harðlega breytingar Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra á námsmati og segir óvissu um framkvæmd þeirra hafa aukist eftir því sem liðið hefur á haustið.
Í aðsendri grein á Vísi segja sex skólastjórnendur sem skipa nefndina að breytingarnar hafi átt að einfalda námsmat en þess í stað hafi skapast fyrirsjáanleg og óhjákvæmileg óvissa um útfærsluna.
„Þrátt fyrir að ráðherra láti sitt færasta fólk þramma með sér þessa leið minnir þessi vegferð óneitanlega á ævintýrið um keisarann klæðalausa. Útskriftarárgangur vorsins 2027 hefur verið gerður að tilraunahópi fyrir illa ígrundaðar breytingar en vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann í göngunni.“
Skólastjórnendurnir segjast ekki efast um góðan vilja ráðherra en leggja áherslu á að stórar breytingar í menntakerfinu krefjist vandaðs undirbúnings og samráðs.
Nefndin fagnar jafnframt því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hafi hafið frumkvæðisathugun á ákvörðun og innleiðingu breytts námsmatskerfis. Segir hún mikilvægt að ferlið verði tekið til ítarlegrar skoðunar.
