
Ferðamaður var sleginn meðvitundarlaus í ránstilraun á Las Verónicas-svæðinu á suðurhluta Tenerife aðfaranótt föstudags en spænskir fjölmiðlar greina frá málinu.
Samkvæmt upplýsingum um málið mun maðurinn hafa veitt mótspyrnu þegar reynt var að ræna hann. Grunaður árásarmaður brást þá við með því að slá ferðamanninn í höfuðið.
Við höggið hlaut maðurinn opið sár á höfði og féll í götuna meðvitundarlaus.
Lögreglumenn komu skömmu síðar á vettvang og veittu manninum fyrstu hjálp á meðan beðið var eftir sjúkrabifreið. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús til frekari aðhlynningar.
Grunaður maður handtekinn skammt frá
Lögregla hóf þegar leit að manninum sem grunaður var um árásina og var hann handtekinn skammt frá vettvangi. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um hinn handtekna eða hvort honum hafi formlega verið birt kæra vegna málsins.
Sá slasaði er sagður vera erlendur ferðamaður en hvorki hefur verið greint frá þjóðerni hans né aldri.
Ekki hafa heldur komið fram frekari upplýsingar um líðan mannsins eftir að hann var fluttur á sjúkrahús.
