1
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

2
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

3
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

4
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

5
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

6
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

7
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

8
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

9
Innlent

Toyota innkallar Lexus NX

10
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

Til baka

Flúðu lögreglu inn á flugvöll og óku á einkaþotu

Bifreiðin vakti athygli lögreglu þar sem henni var ekið á aðeins um 60 kílómetra hraða

Scottdale-flugvöllur
Scottdale-flugvöllur
Mynd: Richard N Horne/Wikipedia

Tveir einstaklingar voru handteknir eftir að ökumaður bifreiðar flúði undan lögreglu, braust inn á flugvallarsvæði í Arizona og ók þar inn á flugbraut áður en bifreiðin hafnaði á mannlausri einkaþotu.

Atvikið átti sér stað að kvöldi 17. október en lögreglan í Phoenix segir að lögreglumenn hafi þá fylgst með svartri Dodge Challenger-bifreið.

Bifreiðin vakti athygli lögreglu þar sem henni var ekið á aðeins um 60 kílómetra hraða á klukkustund þar sem leyfilegur hámarkshraði var um 105 kílómetrar. Að sögn lögreglu þurftu aðrir ökumenn ítrekað að aka fram úr henni.

Þegar lögregla reyndi að stöðva bifreiðina sinnti ökumaðurinn ekki fyrirmælum og hófst stutt eftirför. Lögregla skaut GPS-staðsetningartæki á bifreiðina og gat því fylgst með ferðum hennar bæði af jörðu niðri og úr lofti.

För bifreiðarinnar endaði við Scottsdale-flugvöll þar sem ökumaðurinn kom að læstu öryggishliði. Þegar lögreglumenn reyndu að loka bifreiðina af bakkaði ökumaðurinn á lögreglubíl og ók síðan í gegnum hliðið.

Þaðan var bifreiðinni ekið inn á flugbraut flugvallarins þar sem hún fór að sögn lögreglu hættulega nálægt nokkrum flugvélum. Ökumaðurinn ók því næst í gegnum lokaðar dyr flugskýlis áður en bifreiðin lenti á mannlausri einkaþotu og stöðvaðist.

Karl og kona hlupu frá bifreiðinni út á flugvallarsvæðið en lögreglumenn náðu þeim skömmu síðar.

Lögregla hefur borið kennsl á þau sem Liberty Dawn Still og Michael Gregory Wall. Þau voru bæði færð í fangageymslu og eiga yfir höfði sér ákærur vegna nokkurra alvarlegra brota.

Alríkislögreglan FBI rannsakar jafnframt hvernig fólkið komst inn á lokað Scottsdale-flugvallar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Bróðir hans þakklátur en segir biðina sára
Klámstjarna kennir samfélagsmiðlum um minnkandi kynhvöt
Heimur

Klámstjarna kennir samfélagsmiðlum um minnkandi kynhvöt

Trump heldur áfram að tala um rassa
Myndband
Heimur

Trump heldur áfram að tala um rassa

Ódysseifur Musks fær falleinkunn
Myndband
Heimur

Ódysseifur Musks fær falleinkunn

Íhugar að fara í mál við Sigfús
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

Skólastjórnendur segja Ingu hafa gert nemendur að tilraunahópi
Innlent

Skólastjórnendur segja Ingu hafa gert nemendur að tilraunahópi

Stálu Pokémon-spilum fyrir yfir 100 milljónir
Heimur

Stálu Pokémon-spilum fyrir yfir 100 milljónir

Ferðamaður rotaður í ránstilraun á Tenerife
Heimur

Ferðamaður rotaður í ránstilraun á Tenerife

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Sveinn Andri dregur trúverðugleika greininga lögreglunnar í efa
Innlent

Sveinn Andri dregur trúverðugleika greininga lögreglunnar í efa

„Við erum ekki öðruvísi fólk“
Fólk

„Við erum ekki öðruvísi fólk“

Heimur

Klámstjarna kennir samfélagsmiðlum um minnkandi kynhvöt
Heimur

Klámstjarna kennir samfélagsmiðlum um minnkandi kynhvöt

Er algjör reynslubolti í þessum heimi
Trump heldur áfram að tala um rassa
Myndband
Heimur

Trump heldur áfram að tala um rassa

Ódysseifur Musks fær falleinkunn
Myndband
Heimur

Ódysseifur Musks fær falleinkunn

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

Flúðu lögreglu inn á flugvöll og óku á einkaþotu
Heimur

Flúðu lögreglu inn á flugvöll og óku á einkaþotu

Loka auglýsingu