
Lögreglan á Suðurnesjum undirbýr leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar í Grindavík á morgun, en hann féll niður um jarðfall í bænum í janúar 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni en RÚV sagði frá málinu.
Viðbragðsaðilar og sérfræðingar vinna að undirbúningi í dag, meðal annars við að tryggja öryggi og koma upp vinnusvæði fyrir leitina. Stefnt er að því að hefja aðgerðina um klukkan 9 í fyrramálið við Vesturhóp 29 í Grindavík.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur virkjað vettvangsstjórn vegna aðgerðarinnar og er hún þegar að störfum í Grindavík. Leitin fer fram í kjölfar áhættumats sem lögreglustjórinn ber ábyrgð á og unnið er eftir við undirbúning og framkvæmd aðgerðarinnar.
Bróðir Lúðvíks þakklátur en segir biðina sára
Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, sagðist um helgina þakklátur öllum sem hefðu lagt sitt af mörkum til að ákveðið yrði að ráðast í leitina, sem og þeim sem fara niður í gryfjuna til að leita að líkamsleifum bróður hans.
Þetta skrifaði Elías í færslu á Facebook. Þar sagði hann jafnframt erfitt að horfa fram hjá því hversu skamman tíma hefði tekið að setja Lúðvík í þá hættu sem leiddi til dauða hans, en hversu langan tíma hefði tekið að undirbúa leitina. Nærri þrjú ár væru liðin.
„Það þurfti áhættumat, mat erlendra sérfræðinga og mótvægisaðgerðir áður en óhætt þótti að senda nokkurn mann niður í sprunguna. Það er rétt og eðlilegt að fara varlega,“ skrifaði Elías.
Hann benti hins vegar á að þegar Lúðvík og vinnufélagi hans voru sendir til starfa í bakgarði í Grindavík í janúar 2024, þar sem þeir áttu að fylla undir hús, hefðu engar sambærilegar öryggisráðstafanir verið gerðar.
Að sögn Elíasar hafði Veðurstofan þá þegar varað sérstaklega við sprunguhreyfingum, en ekkert áhættumat hefði legið fyrir um hættuna sem fylgdi verkefninu sem þeim var falið. Ekki hefði heldur verið metið hvort verkið væri yfirhöfuð áhættunnar virði.
Elías segir sárast að dauða Lúðvíks hefði mátt koma í veg fyrir.
„Lúlli dó ekki vegna óviðráðanlegra náttúruafla, heldur vegna ákvarðana sem voru teknar og ákvarðana sem ekki voru teknar en hefðu betur verið teknar,“ skrifaði Elías.
