1
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

2
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

3
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

4
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

5
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

6
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

7
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

8
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

9
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

10
Innlent

Toyota innkallar Lexus NX

Til baka

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Gunnlaugur Stefánsson
Gunnlaugur Stefánsson
Mynd: Aðsend

Arðurinn af veiðihlunnindum skiptir máli og ræður úrslitum um búsetu fólks á mörgum bæjum í sveitum landsins. Bóndi sagði frá því í blaðaviðtali ekki fyrir löngu síðan, að tekjurnar af ánni borgi áburðinn á túnin. Án þeirra tekna yrði hann að hætta búskap.

Veiðin er snar þáttur í afkomu fjölmargra bænda og fjölskyldna þeirra. Auk þess eru veiðihúsin stórir vinnustaðir í dreifbýlinu þar sem margir starfa á góðum launum. Þá hafa margir bændur dýrmætar viðbótartekjur vegna starfa við veiðina, t.d.leiðsögn og akstur. Þetta þekki ég vel eftir að hafa verið formaður Veiðifélags Breiðdæla í 30 ár og setið í stjórn Landssambands Veiðifélaga um árabil.

Samkvæmt úttekt Hagfræðistofnunar HÍ frá 2018 eru verðmæti lax-og silungsveiða talin 260 milljarðir uppfært til núvirðis og 3.400 lögbýli tilheyri veiðifélögum.

Sjókvíaeldið ógnar afkomu bænda.

Opna sjókvíaeldið með norskan og frjóan lax hefur verið að færa út kvíarnar síðustu árin. Alls staðar í veröldinni hefur það stórskaðað villta laxastofna og víða hreinlega lagt af veiði á villtum laxi. Það eru vísindalegar staðreyndir.

Opna sjókvíaeldið hér á landi er tiltölulega stutt á veg komið , framleiðslan rétt um 50 þúsund tonn , en heimilt er að ala yfir 100 þúsund tonn í kvíum. En þróunin er nákvæmlega sú sama hér á landi og jafnvel verri en annars staðar.

Eldislax sleppur bæði með slysasleppingum og síleka seiða úr kvíum, áföll dynja á eldinu vegna sjúkdóma, lúsar, kulda og marglyttu. Þá hafa kvíarnar farið illa í aftakaveðrum sem eru þá eins og tifandi tímasprengjur.

Erfðablöndun flæðir nú yfir villta laxastofna í íslenskum ám. Ef áfram heldur sem horfir blasir ekkert annað við en að arðurinn af veiðinni hverfi sem yrði þungt högg fyrir íslenskan landbúnað og búsetuna í sveitum landsins.

Þá vegur opna sjókvíaeldið gróflega að stjórnarskrárbundnum eignarrétti bænda með því að stórskaða dýrmæt verðmæti veiðiréttinda samofin jörðunum.

Mikil þörf er á að stjórnvöld bregðist við með nýrri lagasetningu. Þar verði sett ákvæði um stöðvun á vexti laxeldis í opnum kvíum, en við gætu tekið lokaðar kvíar og ófrjór fiskur. Lögsetja verður friðunarsvæði m.a. í Eyjafirði, Skjálfanda, Öxarfirði og Seyðisfirði. Atvinnuvegaráðherra hefur tvisvar lagt fyrir Alþingi frumvarp um að kvótavæða sjókvíaeldið eins og gildir um fiskveiðarnar. Það yrði stórslys sem verður að forða.

Bændasamtökin sofa á verðinum

Það vekur athygli, að opna sjókvíaeldið er ekki enn komið á dagskrá Bændasamtakanna. Þar er þagað þunnu hljóði um ógnandi stöðuna gagnvart hagsmunum bænda. Bændasamtökin eru skjöldur og skjól búandi fólks í sveitum landsins. Því er eðlilegt að spurt sé af hverju þögnin stafar.

Bændasamtökin hafa tekið landeldið undir sína arma, en láta sig sjókvíaeldið engu skipta. Samt er opna eldið arfavont fyrir landeldið þar sem lögð er áhersla á umhverfisvæna gæðaframleiðslu af allt öðrum toga en gildir um opnu kvíarnar. Hagsmunir landeldisins felast í því að greina sig rækilega frá opna eldinu.

Því verður vart trúað, að Bændasamtökin haldi áfram að sitja hjá með þögninni á meðan vegið er alvarlega að hagsmunum bænda og grafið er undan búsetu fólksins í sveitum landsins.

Gunnlaugur Stefánsson, fyrrum alþingismaður og sóknarprestur í Heydölum í Breiðdal

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Voru á heimleið frá Rostov-on-Don, þar sem þeir höfðu mætt liði Rostov í gær.
Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Klámstjarna kennir samfélagsmiðlum um minnkandi kynhvöt
Heimur

Klámstjarna kennir samfélagsmiðlum um minnkandi kynhvöt

Trump heldur áfram að tala um rassa
Myndband
Heimur

Trump heldur áfram að tala um rassa

Ódysseifur Musks fær falleinkunn
Myndband
Heimur

Ódysseifur Musks fær falleinkunn

Íhugar að fara í mál við Sigfús
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

Flúðu lögreglu inn á flugvöll og óku á einkaþotu
Heimur

Flúðu lögreglu inn á flugvöll og óku á einkaþotu

Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Áhættuleikur - Börn og seigla
Skoðun

Davíð Már Sigurðsson

Áhættuleikur - Börn og seigla

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?
Skoðun

Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Streita og kulnun
Skoðun

Dávur í Dali

Streita og kulnun

Barnið og sannleikurinn
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Barnið og sannleikurinn

Loka auglýsingu