
Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu ohf., sem annast rekstur Strætó, hyggjast fækka ferðum á ákveðnum leiðum frá og með 1. desember en RÚV greinir frá þessu.
Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu, segir stöðugt unnið að þróun leiðarkerfisins með það að markmiði að auka þjónustu þar sem eftirspurn er mest en draga úr henni þar sem minni þörf er fyrir ferðir.
Þjónusta Strætó var aukin verulega haustið 2025 og aftur haustið 2026. Nú sé hins vegar til skoðunar að draga úr tíðni á ákveðnum leiðum þar sem farþegafjöldi réttlæti ekki núverandi þjónustustig. Ekki hefur verið ákveðið hvaða leiðir verða skornar niður
Einnig er til skoðunar að draga tímabundið úr þjónustu yfir jól, páska og sumarfrí á leiðum sem mikið eru nýttar af skólafólki.
Davíð segir endanlegt skipulag enn í vinnslu enda séu nokkrar vikur þar til breytingarnar eiga að taka gildi.
